Alvarleg líkamsárás í Keflavík - árásarmaður í gæsluvarðhald
Árásaraðili í alvarlegri líkamsárás frá því í gærkvöldi í Reykjanesbæ, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögreglan á Suðurnesjum fór með kröfu fyrir Héraðsdóm Reykjaness kl. 13:00 í dag. Ástanda árásarþola er stöðugt en alvarlegt. Rannsókn málsins miðar vel áfram, segir í vef lögreglunnar.
Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu kl. 22:16 í gærkvöldi um alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Þegar lögreglumenn komu á vettvang ásamt sjúkraliði var ljóst að viðkomandi var með alvarlega stunguáverka og því fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta var þetta á Víkurbraut í Keflavík og lokaði lögreglan svæðinu á horninu fyrir framan verslun Fjölskylduhjálpar.
Lögreglan hóf strax leit af meintum árásamanni og fannst viðkomandi á höfuðborgarsvæðinu fljótlega eftir miðnætti.