Íþróttir

Njarðvíkingar á grænu ljósi í 3-1 sigri á Keflavík
Dominik Radic örugglega í vinstra hornið, þriðja mark UMFN. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. júní 2025 kl. 22:35

Njarðvíkingar á grænu ljósi í 3-1 sigri á Keflavík

Njarðvíkingar brutu blað í knattspyrnusögu Reykjanesbæjar þegar þeir unnu granna sína úr Keflavík í leik liðanna í Lengjudeildinni í Njarðvík í kvöld en þetta var í fyrsta skipti sem UMFN vinnur Keflavík í deildarkeppni í knattspyrnu. Lokatölur urðu 3-1 og þeir grænu eru í efsta sæti deildarinnar eftir sigurinn en Keflvíkingar eru í 7. sæti.

Njarðvíkingar fögnuðu innilega tímamótasigri á grönnum sínum en Haraldur Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga var skiljanlega ekki eins sáttur eins og heyra má í viðtali eftir leik.

Eftir frekar jafnan fyrri hálfleik þar sem fátt markvert gerðist voru það gestirnir úr Keflavík skoruðu fyrsta mark leiksins á 61. mínútu. Kári Sigfússon sem hafði klúðrað dauðafæri mínútum áður skoraði þegar hann fékk boltann í miðjum vítateig framhjá Aroni Snæ markverði Njarðvíkinga, 0-1.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Keflvíkingar voru mun betri í upphafi síðari hálfleiks og áttu möguleika á að auka við forskotið en tókst ekki. Smám saman tóku heimamenn öll völd á vellinum og leikmenn á bekknum létu til sín taka á lokakaflanum. Á 77. mínútu skoraði Björn Aron Björnsson, nýkominn inn á sem varamaður, glæsilegt mark eftir sendingu frá Oumar Diouck frá vinstri, 1-1 og heimamenn fögnuðu vel.

Aðeins tveimur mínútum síðar bættu þeir grænu við marki. Fyrrnefndur Oumar Diouck fékk sendingu frá Svari Erni Þórðarsyni beint á kollinn og hann sendi boltann hægra megin í netið án þess að Sindri markvörður kæmi nokkrum vörnum við, 2-1 og njarðvískir stuðningsmenn fögnuðu innilega.

Ýmir Hjálmsson kom inn á af bekknum á 88. mínútu og mínútu síðar er brotið á honum inni í vítateig og víti dæmt sem Keflvíkingar voru ósáttir með, sérstaklega Sindi markvörður. Njarðvíkingar hafa ekki nýtt vítin vel í sumar en nú skoraði Dominik Radic örugglega í vinstra hornið án þess að Sindi kæmu nokkrum vörnum við, 3-1 og sigur Njarðvíkinga í höfn.

Björn Aron Björnsson skoraði fallegt jöfnunarmark Njarðvíkinga.

Oumar Diouck stangaði boltann í netið.