Völlur mathöll hefur opnað á Ásbrú
Völlur mathöll hefur opnað á Ásbrú en þar bjóða sjö veitingaaðilar upp á fjölbreyttan mat. Í þessu gamla en nú endurbyggða húsnæði var á tímum varnarliðsins veitinga- og skemmtistaðurinn Top of the Rock sem margir Suðurnesjamenn muna eftir.
Veitingaaðilar eru í mathöllinni og bjóða upp á íslenskan mat, asískan, ítalskan og indverskan. Gestir fengu að smakka og létu vel af.
„Markmið var að gæðalega verði mathöllin á pari við það sem best þekkist hér á landi og taki einnig mið af þeirri þróun sem á sér stað í slíkum rekstri í heiminum og við vonum að það hafi tekist,“ segir Sverrir Sverrisson hjá fyrirtækinu ToRo sem á húsnæðið en meðeigendur hans eru bróðir hans Sævar og Kjartan Eiríksson.
Opnunardagurinn var í gær 27. júní en meðfylgjandi myndir voru teknar í opnunarhófi daginn áður.