Reykjanesbær ekki í fjárhagserfiðleikum
- segir meirihluti bæjarstjórnar í bókun
Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hafnar því að sveitarfélagið sé í fjárhagserfiðleikum og segir umfjöllun eins fjölmiðils síðustu daga gefa ranga mynd af stöðunni. Í bókun frá meirihluta bæjarstjórnar segir að Reykjanesbær sé í eðlilegri fjármögnun vegna mikilla framkvæmda og að meirihlutinn vinni nú að hagræðingu og skýru verklagi.
Í bókuninni kemur fram að sveitarfélagið hafi greitt nær alla reikninga vegna framkvæmda fram í júní, fyrir utan einn sem tengist hjúkrunarheimili og er í meðförum ríkisins. Þá sé lántaka bæjarins, sem nemur 2,5 milljörðum króna, í samræmi við það sem önnur stór sveitarfélög gera – sum sækja um margfalt hærri fjárhæðir.
Meirihlutinn segir að tekist hafi að reka bæinn með ábyrgum hætti undanfarin ár, safna í sjóði og framkvæma án skuldsetningar. Nú sé hins vegar þörf á frekari uppbyggingu vegna mikils íbúavöxts.
Lagt hefur verið til að laun sviðsstjóra og bæjarstjóra verði lækkuð um 10%, og að bæjarfulltrúar og nefndarfólk taki ekki við launahækkunum á árinu. Þá hefur verið ákveðið að einblína á þrjú lykilverkefni í fjárfestingum: endurnýjun Myllubakkaskóla og Holtaskóla, og nýjan leikskóla í Drekadal.
Hagræðing og aðhald byggist á breyttum rekstrarskilyrðum, svo sem hækkandi launakostnaði, brotthvarfi samstarfs við Grindavík og samningsslitum Vinnumálastofnunar. Meirihlutinn áréttar að Reykjanesbær sé vel rekið sveitarfélag sem bregðist við með ábyrgum hætti.
Bókun um fjárreiður Reykjanesbæjar
Undanfarna daga hefur Reykjanesbær verið áberandi í umfjöllun eins fjölmiðils þar sem fjallað hefur verið einhliða um stöðu verkefna, stöðu fjárhags og meirihluta bæjarstjórnar.
Skoðanaskipti eru sjálfsögð enda tjáningarfrelsi í landinu okkar. Þó verðum við að bregðast við þegar umfjöllun frá einum fjölmiðli snýr að því að dæla út neikvæðum fréttum um bæinn okkar á hverjum degi, þá er ekkert annað í stöðunni en að árétta um stöðuna, eins og hún raunverulega er.
Reykjanesbær er ekki í fjárhagserfiðleikum. Vegna mikilla framkvæmda undanfarin ár og fjölda verkefna sem við erum að klára á sama árinu, erum við að taka lán fyrir framkvæmdum, líkt og fjöldinn allur af sveitarfélögum gerir á ári hverju. Reykjanesbær mun klára þessi stóru mikilvægu verkefni sem hafa beðið vegna slæmrar fjárhagsstöðu bæjarins á árum áður. Við skulum ekki gleyma því að það er flókið mál að endurreisa stórt sveitarfélag eftir nær gjaldþrot. Það tekur tíma.
Við höfum verið mjög ábyrg í rekstri undanfarin ár og náð að safna í sjóði og lifað á eigið fé í allnokkur ár. Allir hljóta þó að sjá þegar að sveitarfélag er í gríðarlegum vexti árlega, þá kallar það á uppbyggingu innviða. Við því erum við að bregðast. Við erum nýlega búin að opna körfuboltahöll fyrir Njarðvík og nýja sundlaug í því hverfi. Við munum í sumar opna Hljómahöll sem menningarmiðstöð bókasafns, tónlistarhúss og Rokksafns. Við erum að opna tvo nýja leikskóla á þessu ári og bættum við einni 25 barna deild við þann þriðja. Við erum enn að stækka og endurbyggja tvo grunnskóla auk allra annarra verkefna sem eru brýn og aðkallandi. Það myndast eðlilega þrýstingur í kerfinu eftir uppbyggingu og viðhaldi þegar erfiðleikar hafa verið í rekstri bæjarins á árum áður. Auk þess seldi Reykjanesbær á árum áður frá sér allar stóru eignir bæjarins til fjárfestingarfélags sem sá um þær og þeirra viðhald í áratug.
Fyrir það fyrsta vill meirihlutinn árétta að við erum að reka hér stórt þjónustufyrirtæki sem heitir Reykjanesbær. Við höfum hér skyldur til reksturs og við erum með fullt af fólki í vinnu fyrir okkur í allskyns verkefnum bæði okkar eigið starfsfólk og verktaka.
Reykjanesbær sem sveitarfélag sem gætir að fjármunum skattgreiðenda sinna greiðir ekki dráttarvexti. Það gerir íslenska ríkið ekki heldur og fæst sveitarfélög. Við notumst við ákveðna greiðsluaðferð en það gerist endrum og eins að verktakar senda greiðsluseðla og stundum með mjög fáum dögum milli gjalddaga og eindaga. Þetta eigum við erfitt með að bregðast við á svo skömmum tíma en við erum að búa til verklagsreglur um greiðsluferli sveitarfélagsins þar sem verður mjög skýrt hvernig við ætlum að haga okkar greiðsluferli í takt við önnur sveitarfélög og ríki. Það er óeðlilegt að senda inn reikninga til sveitarfélags og ætlast til að fá þá greidda innan viku en þetta mun verða mjög skýrt hér eftir.
Til að fullvissa íbúa Reykjanesbæjar sem lesa ítrekað dómsdagsspár um tímabundna skammtíma skuldastöðu bæjarins skal það sagt að staðan þann 25. júní var sú að Reykjanesbær hefur greitt alla útistandandi reikninga við verktaka sem áttu reikninga á bæinn vegna framkvæmda fyrir maí og júní nema einn. Aðeins einn reikningur er ógreiddur en hann er vegna hjúkrunarheimilisins en við erum í viðræðum um það verkefni við ríkisstjórnina og stefnum að því að leysa úr því á allra næstu vikum.
Að auki skal það sagt að Reykjanesbær mun sækja um síðustu 500 milljónirnar sem samþykkt var af bæjarstjórn í apríl þegar samþykkt var að taka 2,5 milljarða langtímalán til Lánasjóðs sveitarfélaga. Verið er að vinna að þeirri fjármögnun en þegar hefur verið sótt um 2 milljarða í skammtímalán og því hefur lánaheimildin ekki verið fullnýtt. Til að setja hlutina í samhengi þá voru tvö af stærstu sveitarfélögum á Íslandi að sækja um fjármögnun árið 2024. Annað sótti um 13 milljarða og hitt um 15 milljarða. Við erum að sækja um 2,5 milljarða. Lán eru ekki óeðlilegur hluti sveitarfélaga, sérstaklega í miklum framkvæmdum.
Meirihluti Reykjanesbæjar er auk þess í vinnu við endurskoðun á fjárútlátum bæjarins þar sem við horfum til þátta eins og launaþróunar, fjárfestinga og annarra fjárútláta.
Í þeirri vinnu hefur þegar verið samþykkt, í takt við ráðleggingar frá stjórn Eignasjóðs, að einblína á þrjú verkefni til ársloka í fjárfestingum en þau eru Myllubakkaskóli, Holtaskóli og leikskólinn við Drekadal. Skólarnir eru verkefni sem hafa verið hvað lengst í vinnslu hjá okkur og mikilvægt að við einbeitum okkur að þeim verkefnum. Leikskólinn er okkur mikilvægur sem grunnþáttur í okkar samfélagi fyrir barnafólkið okkar og setjum við því alla okkar áherslu til áramóta í þau verkefni og höfum þá fjárfest á árinu fyrir 1.750 milljónir.
Auk þess höfum við verið að yfirfara laun sveitarfélagsins. Við höfum tekið þá ákvörðun, til hagræðingar, að lækka laun sviðsstjóra og bæjarstjóra um 10%. Í framhaldi af því verður framtíðarfyrirkomulagi þeirra launa breytt sem tengist þá við hækkun kjarasamninga þeirra fagstétta í stað þess að vera vísitölutengd.
Hvað varðar laun bæjarfulltrúa og kjörinna fulltrúa í nefndum og ráðum þá munum við ekki taka inn hækkun launa í ár samkvæmt hækkun á þingfarakaupi, sem hefði hækkað laun kjörinna fulltrúa um 5,6%. Það er mikilvægt að árétta það hér að bæjarfulltrúar og aðrir kjörnir fulltrúar tóku heldur ekki inn launahækkun fyrir árið 2024 og eru því að fá greidd laun í samræmi við árið 2023. Það er leitt en ábyrgt á þessu stigi að bæjarfulltrúar taki þátt í hagræðingaraðgerðum bæjarins.
Hagræðingaraðgerðir eru ekki gerðar vegna tímabundinnar lausafjárstöðu Reykjanesbæjar. Aðgerðirnar eru gerðar vegna breyttra aðstæðna í ár í rekstri sem við þurfum að bregðast við, líkt og önnur sveitarfélög. Ástæður fyrir því eru eftirfarandi:
- Vegna nýsamþykktra kjarasamninga myndast gat í rekstrinum fyrir þeim launum upp á tæplega 600 milljónir sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
- Grindavík hefur dregið sig úr sameiginlegum verkefnum sveitarfélaganna á Suðurnesjum og greiðir Reykjanesbær þar af leiðandi yfir 80% í sameiginlegum kostnaði sveitarfélaganna í verkefnum eins og viðbyggingu FS, í úrræðum eins og Hæfingastöðina, Björgina o.s.frv.
- Vinnumálastofnun hefur sagt upp samningum við sveitarfélagið sem myndar halla á árinu fyrir 15-20 milljónir. Á þessari aðgerð var þriggja mánaða fyrirvari.
- Mikið álag hefur verið vegna viðhalds og nýframkvæmda og uppsafnaður þrýstingur í kerfinu.
- Samningur við Skólamat reyndist dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir þar sem nær öll börn sækja sér þessa þjónustu, sem er vel.
Til að sýna fjárhagslega ábyrgð erum við að bregðast við þungum ytri aðstæðum líkt og teknar eru fram hér að ofan. Auk þess erum við að klára miklar og stórar framkvæmdir á árinu og því er lántaka eðlileg.
Reykjanesbær er frábær bær og honum er vel stýrt. Við erum að grípa til aðgerða vegna ýmissa þátta sem hafa verið reifaðir hér. Meirihlutinn er að bregðast við breyttum rekstraraðstæðum með ábyrga fjármálastjórn að leiðarljósi.
Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.