Erum sætasta stelpan á ballinu - segir glaður formaður UMFN
„Við erum klárlega sætasta stelpan á ballinu og stefnum upp í efstu deild,“ sagði Hjalti Már Brynjarsson, formaður Knattspyrnudeildar Njarðvíkur eftir frækinn sigur á Keflvíkingum í Njarðvík í Lengjudeildinni.
Hjalti tók við formennskunni í vor og var að vonum mjög glaður eftir þennan glæsilega sigur á grönnunum úr Keflavík sem eiga mun stærri knattspyrnusögu en „litla“ liðið úr Njarðvík sem er heldur betur að sýna tennurnar í Lengjudeildinni.
„Við erum búin að vera að sá fræum undanfarin ár, það er mikið af fólki sem stendur í þessu starfi og við stefnum hátt,“ sagði garðyrkjufræðingurinn og formaðurinn.
Fréttamaður Víkurfrétta var á nágrannaslagnum og hér að neðan má sjá myndasyrpu úr leiknum.