Mannlíf

Börnin í forgrunni á 17. júní hátíðarhöldum í Grindavík
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 18. júní 2025 kl. 14:46

Börnin í forgrunni á 17. júní hátíðarhöldum í Grindavík

„Við fengum styrk úr samverusjóði  tilað reyna á að halda íþróttaskóla fyrir leikskólabörn í Grindavík og fannst 17. júní vera tilvalin dagsetning til að prófa. Þetta kom mjög vel út og við stefnum á að hittast í nokkur skipti og munum þá auglýsa vel,“ segir Petrúnella Skúladóttir sem heldur utan um verkefnið.
Hátíðarhöld Grindvíkinga voru því með breyttu sniði en oft áður, íþróttamiðstöð Grindavíkur var miðpunkturinn og skemmtu börn og foreldrar sér hið besta.
Petrúnella Skúladóttir.

Boðið var upp á kaffiveitingar í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar og var talsverður fjöldi Grindvíkinga sem kom saman. Nýja íþróttasalnum var skipt til helminga þar sem yngri kynslóðin réði ríkjum öðru megin og þau eldri gátu leikið sér í körfubolta hinum megin.

„Það var æðislegt að koma aftur heim í íþróttasalinn okkar og sjá börnin hittast og leika sér saman,” segir Petrúnella.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Íþróttaskólinn mæltist mjög vel fyrir á sínum tíma enda góður vettvangur fyrir börn og foreldra að hittast. Hvað þá núna þegar samfélagið er tvístrað, frábært tækifæri fyrir Grindvíkinga að geta komið heim og leyft börnunum að sprikla í íþróttahúsinu og fara jafnvel í sund á eftir. Veitingastaðirnir flestir hafa opnað og hægt að gera sér góðan dag.

Hægt verður að fylgjast með samverustundunum á síðu Grindavíkurbæjar.

Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Ólafsson skaut á körfu á meðan dóttir hans lék sér í íþróttaskólanum hinum megin.
Haraldur Jóhannesson var mættur með syni sína.