Samfélagslögreglan byggir upp jákvætt tengslanet
„Við viljum byggja upp jákvæð tengsl við unga fólkið á Suðurnesjum,“ segir Sigurrós Antonsdóttir, samfélagslögregluþjónn
Samfélagslögreglan á Suðurnesjum gegnir sífellt stærra hlutverki í löggæslu og forvarnarstarfi. Verkefnið felst í því að byggja upp tengsl og traust á milli lögreglu og almennings, bæði barna og fullorðinna. Nú er lögð sérstök áhersla á að tengjast ungmennum, áður en eitthvað kemur upp á.
„Við viljum að ungt fólk þekki okkur og finni að það geti leitað til okkar,“ segir Sigurrós Antonsdóttir, samfélagslögregluþjónn. Hún bendir á að samfélagslögreglan sé ekki ný af nálinni í embættinu, en nú sé krafturinn aukinn.
„Hér hefur alltaf verið eitt stöðugildi í samfélagslöggæslu, það var aldrei lagt niður,“ segir hún. „Margar kynslóðir muna eftir Guðmundi Sæmundssyni og Kristjáni Geirssyni með Lúlla löggubangsa, þetta er arfleifð sem við byggjum á.“
Á vettvangi meðal fólks
Samfélagslögreglan sinnir margvíslegu starfi, allt frá heimsóknum í skóla og félagsmiðstöðvar yfir í þátttöku í hverfaviðburðum. „Við erum víða, í reiðhjólaskoðun eins og í dag, á útivistardögum í félagsmiðstöðvum, í samtölum við forstöðufólk, á körfuboltavöllum að spila við krakkana,“ segir Sigurrós.
Þó að aðeins örfáir mæti skipti það engu máli: „Við mætum og tökum þátt, það er það sem skiptir máli.“
Þegar skólarnir voru að ljúka störfum í vor heimsótti samfélagslögreglan vorhátíðir grunnskóla. Nú í sumar heldur starfið áfram með því að tengjast starfssemi félagsmiðstöðva og vinnuskóla. „Við þurfum að ná til allra aldurshópa og vera sýnileg,“ segir hún.
Viðbrögð við hörmulegu atviki
Eftir alvarlegt atvik á Menningarnótt í Reykjavík í fyrra, þar sem unglingsstúlka lést eftir stunguárás, ákvað Ríkislögreglustjóri að efla samfélagslöggæslu um allt land. Sú ákvörðun hefur styrkt verkefnið á Suðurnesjum enn frekar.
„Við vorum svo heppin að hafa verið með samfélagslögreglu hér alla tíð, eins og Krissa löggu með löggubangsann,“ segir Sigurrós. „Það er gríðarlega mikilvægt að hafa þennan þátt í starfi lögreglunnar.“
Hún undirstrikar að verkefnið sé ekki til skamms tíma. „Þetta er ekki eitthvað sem við prófum í eitt sumar, þetta er bráðnauðsynlegt. Lögreglan þarf að tengjast samfélaginu betur og vera sýnilegri.“
Jákvæð viðbrögð
Sigurrós segir viðtökur ungmenna hafa verið góðar, þó sum hafi í fyrstu óttast að heimsókn lögreglunnar boði eitthvað neikvætt. „En þegar þau átta sig á því að við komum bara til að taka þátt og spjalla, þá breytist andrúmsloftið. Við viljum mynda tengsl og það gerum við með því að vera til staðar og taka þátt.“


Reiðhjólaskoðun hjá leikskólanum Holti.