Samfélagslöggurnar fóru yfir hjólabúnað barnanna
Börnin á leikskólanum Holti í Innri-Njarðvík fengu heimsókn frá þremur lögreglukonum á dögunum sem skoðuðu fararskjóta barnanna og athuguðu hvort hjálmarnir væru ekki rétt stilltir. Öll hjól fengu fulla skoðun hjá löggunni og nokkur börn fóru heim með skilaboð til foreldra um að það þurfi að athuga betur með festingar á hjálmum, þannig að þeir geri sitt gagn.
Lögreglukonurnar skipa hóp sem sinnir samfélagslöggæslu þar sem lögð er áhersla á að byggja upp jákvæð tengsl við börn og ungmenni. Nánar um samfélagslögguna í blaðinu í dag og einnig í sjónvarpi á vef Víkurfrétta, vf.is.