„Það er ekkert víst að þetta klikki“
NÆRMYND // Hermann Nökkvi Gunnarsson er aðstoðarmaður bæjarstjóra í Reykjanesbæ
Hermann Nökkvi Gunnarsson er Njarðvíkingur í húð og hár, þótt háskólanám í stjórnmálafræði hafi haldið honum í höfuðborginni síðustu tvö ár. Hermann, sem er fæddur árið 2002, tók nýverið við starfi aðstoðarmanns bæjarstjóra Reykjanesbæjar og fagnar því að vera kominn aftur á heimavöllinn þar sem hann stefnir á að láta gott af sér leiða fyrir íbúana. Í Nærmynd dagsins ræðir hann um uppvöxtinn í Njarðvík, frábær ár í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, bernskudrauma sem rættust aðeins of vel og eldhúsklúður sem breyttist í fullkomna „hot wings“ uppskrift.
Nafn: Hermann Nökkvi Gunnarsson
Fæðingarár: 2002
Búseta: Alla tíð verið í Njarðvík en er síðustu tvö árin búinn að vera búsettur í Reykjavík vegna háskólanáms.
Hverra manna ertu og hvar upp alin? Móðir mín er Guðný Hermannsdóttir og pabbi minn hét Gunnar Björn Björnsson, en hann lést árið 2012 eftir baráttu við krabbamein. Það má rekja móðurætt mína til Stapakots í Innri-Njarðvík, þar sem langamma mín Guðný Kjartansdóttir var alin upp, og svo einnig til Rafnkelsstaða og Vara í Garðinum. Föðurætt mína má rekja til Reykjavíkur og amma mín, Heiður Kristjánsdóttir, var hótelstjóri á gullaldarárum Hótel Borgar. Eftir að hafa lokið sér af Hótel Borg varð hún sölu- og hótelstjóri hjá Bláa lóninu og flutti um leið að sjálfsögðu í besta bæ landsins, Reykjanesbæ. Ég var sjálfur alinn upp í Njarðvík, bæði í Innri-Njarðvík og Ytri-Njarðvík.
Starf/nám: Aðstoðarmaður bæjarstjóra Reykjanesbæjar og námsmaður við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Hvað er í deiglunni? Koma mér fyrir í nýju starfi og gera mitt besta til að láta gott af mér leiða fyrir íbúa Reykjanesbæjar.
Hvernig nemandi varstu í grunnskóla? Uppátækjasamur…
Hvernig voru framhaldsskólaárin?
Gjörsamlega frábær. Sat í aðalstjórn NFS sem busi, varaformaður og svo formaður þannig að stór hluti af námsárunum fór í félagslífið. Kennararnir voru frábærir og árgangarnir sem voru í FS voru líka einstaklega skemmtilegir. Ég held að þú finnir hvergi öflugra félagslíf í íslenskum framhaldsskólum heldur en í FS.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Þegar ég var mjög ungur fór ég stundum með pabba í vinnuna á fasteignasöluna Remax. Eitt skiptið spurði Sigurður Sigurbjörnsson, sem starfaði með pabba, mig einmitt þessarar spurningar.
Siggi: „Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?“
Ég: „Ég ætla að verða eins og pabbi!“
Siggi: „Nú, ætlarðu að verða fasteignasali?“
Ég: „Nei, ég ætla að verða feitur.“
Það má segja að sá draumur hafi ræst fullkomlega! Núna starfa ég hins vegar beint á móti Sporthúsinu og stefni því á að vinda ofan af þessum „áfanga“ á næstu misserum.Hver var fyrsti bíllinn þinn? Notaður Hyundai i10 sem fékk nafnið Hnísan. Hnísan gaf upp öndina innan við tveimur árum seinna á Reykjanesbrautinni á leiðinni í veiði. Það var ekkert fiskerí þann fallega sumardag.
Hvernig bíl ertu á í dag? Volkswagen Polo 2012 árgerð. Hann hefur staðið af sér ýmsa storma en ég held að hann eigi 1-2 góð ár eftir.
Hver er draumabíllinn? Ford F-150
Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki? Eflaust PlayStation 3 og 4, ef leikfang skyldi kalla.
Besti ilmur sem þú finnur: Nýslegið gras á sólríkum sumardegi. Það er erfitt að toppa þann ilm.
Hvernig slakarðu á? Hitta vini og hlusta á góða tónlist
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. 18 ára? Allt eftir Chris Stapleton og Metallica
Uppáhaldstónlistartímabil? Sjöundi áratugurinn
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Allt eftir Luke Combs, Morgan Wallen og Ellu Langley
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Dægurlagatónlist, klassíska sálartónlist og svo spilaði mamma víst Pavarotti þegar ég var ungbarn… Það útskýrir margt.
Leikurðu á hljóðfæri? Nei. Ég fékk gítar að gjöf einu sinni frá mömmu en fann aldrei tíma til að læra á hann.
Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig? Ég horfi ekki mikið á sjónvarp en þegar ég geri það þá er það venjulega bara eitthvað á Netflix. Þættir eins og Blacklist, House of Cards og the Office eru í miklu uppáhaldi.
Besta kvikmyndin: The Green Mile og Forrest Gump
Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur? Extreme Ownership eftir Jocko Willink
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Mamma er best í öllu
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég er nokkuð góður í því að gera hot wings. Sú snilld kom þó ekki áfallalaust enda gerði ég einu sinni vængi sem ég löðraði í matarsóda. Ég hafði þá lesið enskar leiðbeiningar þar sem mælt var með því að setja baking powder (í. lyftiduft) á vængina. Ég keypti óvart baking soda (í. matarsóda) og kaffærði vængina í því til að gera þá stökka. Til að gera langa sögu stutta þá voru um 100 vængir óætir eftir þetta. En í dag er ég búinn að ná að fullkomna þetta.
Hvernig er eggið best? Harðsoðið
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Að ég þurfi að sofa. Það mætti bæta nokkrum klukkutímum við sólarhringinn.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óstundvísi
Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun: „Vertu þú sjálfur; allir aðrir eru þegar fráteknir.“ - Oscar Wilde
Hver er elsta minningin sem þú átt?
Elsta minningin mín er eflaust að sjá bandaríska hermenn á varnarsvæðinu frá því að mamma vann hjá hernum.
Orð eða frasi sem þú notar of mikið: Það er ekkert víst að þetta klikki
Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu? Eflaust í Hvítá árið 2011 í síðustu veiðiferð okkar bræðranna með pabba
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Gamall maður fastur í líkama yngri manns
Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera?
Ég myndi velja Elon Musk. Ekki til að senda eldflaug út í geim, heldur bara til að komast loksins að því hvað er eiginlega að gerast inni í hausnum á honum.
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Ekki núlifandi einstaklingar en ég myndi vilja bjóða Winston Churchill, Abraham Lincoln og Ólafi Thors.
Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2026 hingað til? Þetta er búið að vera gjörsamlega frábært ár í alla staði. Mörgum áföngum hef ég náð í vinnu en einnig líka í mínu persónulega lífi. Ef fyrri hluti ársins segir eitthvað til um næstu sex mánuði þá verður þetta eflaust eitt af bestu árum lífs míns.
Hvað á að gera í sumar? Ég er þegar búinn að fara til Nashville á Chris Stapleton-tónleika og í kjölfarið fór ég til Minnesota þannig ég veit ekki hvort það verði mikið meira frí hjá mér. Ég stefni aftur á móti á það að rífa upp golfkylfurnar og komast vonandi í veiði einu sinni til tvisvar á ári. Svo var mamma að flytja til Vestmannaeyja og því geri ég ráð fyrir því að kíkja þangað reglulega.
Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum, hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim? Ég myndi að sjálfsögðu kíkja með þá á Pulsuvagninn og Olsen Olsen til að fá að upplifa strangheiðarlega matarmenningu okkar Suðurnesjamanna. Svo er ýmislegt til að sýna gestum eins og Gunnuhver, jarðeldasvæðið fyrir utan Grindavík og aðrar eins náttúruperlur. Ég hef tekið upp á því að sýna gestum frá Bandaríkjunum gamla varnarsvæðið á Ásbrú, en þeim finnst sagan um hersetu Bandaríkjanna hér oft mjög merkileg.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu … til Flórída.






