Víðir styrkti stöðu sína á toppnum – Reynir tapaði í Kórnum
Víðismenn tóku stórt skref í átt að meistaratitli 3. deildar karla í knattspyrnu með 3-1 sigri gegn KV á Nesfisk-vellinum í 21. umferð deildarinnar. Á sama tíma misstigu nágrannar þeirra í Reyni sig í toppbaráttunni og töpuðu 2-0 gegn Ými í Kórnum.
Víðir sat fyrir umferðina í efsta sæti deildarinnar og gerði út um leikinn gegn KV strax í fyrri hálfleik. Ísak John Ævarsson kom Garðmönnum í frábæra stöðu með tveimur mörkum á 8. og 12. mínútu. Oddur Ingi Bjarnason minnkaði muninn fyrir KV á 18. mínútu, en Edon Osmani kom Víði aftur í tveggja marka tækifæri með marki á 30. mínútu og skoraði þar með lokamark leiksins, 3-1.
Sandgerðingar í Reyni, sem sitja í 4. sæti deildarinnar, náðu sér hins vegar ekki á strik gegn Ými í gær. Emil Skorri Þ. Brynjarsson var hetja Ýmis, en hann skoraði bæði mörk sinna manna – það fyrra á 20. mínútu og það síðara úr vítaspyrnu á 69. mínútu.
Með sigrinum er staða Víðis á toppnum afar sterk fyrir lokaumferðina þar sem liðið mætir Tindastóli fyrir norðan en Tindastóll er sem stendur í 3. sæti.








