Betri Bær ljósanótt
Betri Bær ljósanótt

Íþróttir

Keflvíkingar með nýtt app
Laugardagur 5. september 2026 kl. 11:47

Keflvíkingar með nýtt app

Keflvíkingar hafa gert smáforrit, app, sem hefur að geyma allt sem snýr að félaginu, næstu leikir í fótbolta og körfubolta, úrslit og tölfræði í beinni, leikmannahópar, fréttir og verslun félagsins, allt á einum stað!

Í frétt frá Keflavík kemur fram að þegar appið er sótt sé verið að styrkja félagið beint. Hver skráning styrkir starfið, meistaraflokka og ekki síst yngri flokkana þar sem framtíðin býr.

Í tilkynningunni segir:

Langbest Ljósanótt
Langbest Ljósanótt

„Í appinu er Fan ID skírteini með QR-kóða sem þú sýnir í símanum. Með því færðu afslætti hjá fyrirtækjum í okkar nærumhverfi sem standa með Keflavík. Farðu út að borða á Kef Restaurant, fáðu þér pizzu hjá Antons Mamma Mía, samloku á Public Deli eða kaffi á Kef Cafe. Kíktu á Paddys, Brons eða Dubliners eftir leik. Slakaðu á í Kef SPA. Uppfærðu skápinn í Skóbúðinni, hjá Viney, Suitup eða Macron og gríptu blómvönd í Blómaskúr Villu á leiðinni heim.

Allt með afslætti fyrir Fan ID-hafa.

Nokkrar heimsóknir í bæinn og appið hefur greitt sig sjálft, og meira til. Fyrirtækin styðja félagið, þú styður fyrirtækin og félagið, og allir vinna. Samstarfsaðilar okkar í dag: Paddys · Brons · Dubliners · Kef Restaurant · Kef SPA · Kef Cafe · Public Deli · Antons Mamma Mía · Skóbúðin · Viney · Blómaskúr Villu · Suitup · Macron. Og þetta er rétt að byrja! Við stefnum á að fjölga samstarfsaðilum jafnt og þétt.

Rekur þú fyrirtæki á Suðurnesjum og vilt komast í appið?

Hafðu samband við okkur. Þetta er einföld leið til að ná til fjölda Keflvíkinga og standa um leið með félaginu. Í appinu finnur þú meðal annars: - Dagatal með öllum leikjum félagsins, karla og kvenna, í fótbolta og körfubolta

- Úrslit, atburðarás og tölfræði leikmanna í beinni - Fréttir af félaginu á einum stað - Verslun félagsins með sértilboðum fyrir appnotendur - Fan ID og afslætti hjá samstarfsfyrirtækjum okkar. 

Komdu á völlinn á laugardaginn og fáðu gjöf. Allir sem skrá sig í appið og mæta á HS Orku völlinn þegar Keflavík tekur á móti Val laugardaginn 5. september kl. 16:30 fá fría Keflavíkur derhúfu eða trefil á meðan birgðir endast. Sýndu Fan ID-ið þitt í appinu við innganginn. Appið er komið í App Store og Google Play.

Sæktu það í dag, skráðu þig og vertu hluti af því að byggja upp Keflavík. Áfram Keflavík!

*Appið er nýtt og enn í mótun. Ef þú rekst á villu, vantar leik í dagatalið eða hefur hugmynd að einhverju sem mætti bæta, þá viljum við endilega heyra af því. Farðu í Notandi → Endurgjöf í appinu og sendu okkur línu. Allar ábendingar hjálpa okkur að gera appið betra fyrir ykkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn