Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Sverrir ráðinn framkvæmdastjóri GS
Sverrir Auðunsson og Ólöf Kristín Sveinsdóttir, formaður GS, innsigla ráðninguna.
Fimmtudagur 27. október 2022 kl. 11:25

Sverrir ráðinn framkvæmdastjóri GS

Sverrir Auðunsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Suðurnesja og mun taka við af starfinu af Andreu Ásgrímsdóttur sem gegnt hefur því frá árinu 2018. 

„Við teljum félaga í GS afar lánsama að fá Sverri til lið við okkur, hann hefur dýrmæta reynslu og menntun sem kemur til með að nýtast vel í starfi hans sem framkvæmdastjóri GS,“ segir Ólöf Kristín Sveinsdóttir, formaður GS.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sverrir er 47 ára viðskiptafræðingur sem hefur unnið hjá DHL Express á Íslandi síðan árið 2000. Hann hefur komið víða við hjá DHL en í stjórnendastöðum hefur hann m.a. verið rekstrar- og fjármálastjóri. Síðustu sex árin hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri á meðan vöxturinn hjá fyrirtækinu hefur verið ævintýralegur á köflum. Sverrir var formaður Golfklúbbs Grindavíkur á árunum 2000 til 2022 og átta ár sem gjaldkeri en samtals voru árin tíu sem hann var í stjórn GG. 

Sverrir segir að hann sé gríðarlega spenntur fyrir að hefja störf enda býr í Golfklúbbi Suðurnesja mikil hefð og rík saga. „Ég tek við góðu búi frá fráfarandi framkvæmdastjóra og framundan eru mörg tækifæri hjá okkur til að efla klúbbinn enn frekar. Það er ekki langt í 60 ára afmælishátið GS og verkin mörg svo hægt sé að fagna afmælisárinu með viðeigandi metnaði að hætti heimamanna. Ég hlakka jafnframt til góðra samskipta og samstarfs við starfsmenn, stjórn, félaga, gesti og samstarfsaðila GS,“ segir Auðunn.

Eftir að hafa sótt vetranámskeið hjá Sigurpáli, íþróttastjóra GS, þar sem stutta spilað var tekið í gegn hefur forgjöfin hjá Sverri lækkað. Hvetur Sverrir alla félagsmenn GS til að nýta sér glæsilegu inniaðstöðu GS í vetur þar sem golfið er ekki lengur bara sumaríþrótt.