Spilin stokkuð upp í Grindavík
„Frá því að ég tók við um mitt sumar í fyrra, var kýrskýrt að klúbburinn stefndi heim til Grindavíkur eins fljótt og hægt var og er mjög mikil ánægja hjá öllum með þessa ákvörðun og mikil tilhlökkun í hópnum og stuðningsmönnum,“ segir Haraldur Árni Hróðmarsson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur. Haraldur tók við þegar skammt var liðið á keppnistíðina og við erfiðu búi má segja, lítil sem engin stemming, liðið byggt upp af u.þ.b. tíu útlendingum og spilaði heimaleiki sína í Safamýri í Reykjavík. Liðið tók við sér þegar Haraldur tók við en eins og oft vill verða, fjaraði undan því og endaði Grindavík að lokum í níunda sæti. Haraldur sá strax eftir tímabilið að kominn væri tími til að stokka spilin upp í knattspyrnunni í Grindavík.
Haraldur hafði verið án þjálfarastarfs síðan tímabilið 2023 kláraðist, þegar kallið kom frá Grindavík snemma síðasta sumar.
„Ég er búinn að vera þjálfa síðan 2013, þegar ég réði mig til aðstoðar með sjöunda flokk hjá Þrótti, þar sem ég var að spila á þeim tímapunkti. Ég færðist upp aldursflokka, var svo kominn í starf hjá Val 2018, ári síðar tók Heimir Guðjóns mig inn í þjálfarateymið, mitt hlutverk var að undirbúa ungu leikmennina fyrir stökkið yfir í meistaraflokkinn. Ég fékk stærra og stærra hlutverk, var svo kominn upp á Skaga, var bæði með puttana í yngri flokka starfinu og aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Er svo tekinn við yngri flokka starfi í meistaraflokki núna hjá Grindavík, þetta segi ég kannski meira í gamni en alvöru en eftir tímabilið í fyrra þá var vilji fyrir að stokka spilin upp. Við fórum í ákveðna naflaskoðun en þessi stóri klúbbur hefur verið í niðursveiflu frá 2018 má segja. Markmiðið var alltaf að kaupa sig upp í efstu deild og við ákváðum að kominn væri tími til að stíga eitt skref aftur á bak til að geta tekið tvö stór skref fram á við einhvern tíma í framtíðinni. Við vorum með mjög marga útlendinga í fyrra og einhvern veginn náðist aldrei að mynda alvöru liðsheild, lykilmenn frá Grindavík voru eðlilega ekki á sínum besta stað í kjölfar hamfaranna í Grindavík. Við náðum aldrei upp alvöru stemningu og því var þetta í raun einföld ákvörðun hjá okkur, að byggja liðið upp frá grunni. Við erum með gríðarlega efnilegan annan flokk og svo hef ég fengið efnilega íslenska stráka, t.d. fjóra Skagamenn sem ég þekki vel og munum við að öllum líkindum tefla þremur útlendingum fram í sumar. Undirbúningstímabilið hefur gengið vel en við erum ekki með nein markmið varðandi sæti, við ætlum að einblína á góða frammistöðu og ef það tekst þá er það góður grunnur sem hægt verður að byggja ofan á.“
Aðstöðumunur
Haraldur er líklega eini þjálfarinn á landinu sem þarf stundum að hringja nokkur símtöl til að ákveða næsta æfingastað en liðið hefur æft hjá FH og á Álftanesi og mun að öllum líkindum æfa í Kaplakrika í sumar. Ríkisstjórnin var búin að samþykkja sambærilegan stuðning við knattspyrnudeildina eins og körfuknattleiksdeild UMFG fékk, sem æfir og keppir í Smáranum.
„Haukur formaður sagði mér í raun strax í fyrra að stefnan væri að fara til Grindavíkur við fyrsta tækifæri. Eins og staðan er, þá er það reyndar eini raunhæfi kosturinn því knattspyrnudeildin hefur ekki ennþá fengið þann styrk sem búið var að lofa af fyrri ríkisstjórn. Það kostar mjög mikið að leigja grasvelli og ljóst að róðurinn verður mjög þungur ef þessi ríkisstjórn stendur ekki við það sem búið var að lofa okkur. Þó svo að við munum leika heimaleiki okkar í Grindavík, var samið við leikmenn um að æfa á höfuðborgarsvæðinu og á þeim tímapunkti var loforð uppi um sambærilegan stuðning til knattspyrnunnar eins og körfukattleikurinn í Grindavík er að fá. Ég vona innilega að þetta nái eyrum og augum ráðafólks, knattspyrnan í Grindavík á skilið að fá sambærilegan stuðning og karfan er að fá, nógu erfitt er að reka starfið eins og það er, svo ekki sé bætt á svona fjárhagsáhyggjum. Ég vona að þessi mál skýrist sem fyrst en ég þarf að einbeita mér að liðinu. Við munum mæta tilbúnir til leiks og lofum því að við munum leggja okkur fram fyrir Grindavík í sumar, sjáum hvert það muni skila okkur,“ sagði Haraldur.

Grindvíkingar ætla að spila heimaleiki sína á Stakkavíkurvellinum í sumar. Fyrsti heimaleikurinn er laugardaginn 10. maí á móti Fjölni og er búist við miklum fjölda Grindvíkinga en skemmtidagskrá verður fyrir leikinn. Grindvíkingar hefja leik á Selfossi á föstudagskvöldið og hefst leikurinn kl. 18:00.