Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Íþróttir

Njarðvík og Grindavík töpuðu bæði
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 6. mars 2026 kl. 09:38

Njarðvík og Grindavík töpuðu bæði

Njarðvík og Grindavík töpuðu bæði sínum leikjum í A-riðli Bónus deildar kvenna í körfubolta í fyrrakvöld. Njarðvík laut ígrasi fyrir Haukum á heimavelli og Grindavík lá einnig á heimavelli gegn Val. Spennan er mikil í riðlinum.

Njarðvíkingar fengu hörku mótspyrnu í fyrsta leikhluta og Haukarnir náðu níu stiga forskoti. Heimakonur minnkuðu muninn fyrir leikhlé en Haukar mættu aftur með látum í þriðja leikhluta og tóku lokaleikhlutann líka og unnu sautján sitga sigur í IceMar höllinni 98-115.

Stórleikur Brittany Dinkins (29 stig og 10 fráköst) og Danielle Rodriguez (24 stig) dugði ekki. Þær Anandine Toi (33 stig) og Krystal-Jade Freeman (26 stig og 11 fráköst) voru öflugar hjá Haukum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Í Grindavík var svipað uppi á teningnum. Gestirnir úr Val náðu forystu en Grindavík kom til baka og svo fór að framlengja þurfti leikinn. Þá var allt púður úr þeim grindvísku sem skoruðu aðeins fimm stig í framlengingunni gegn þrettán hjá Val sem unnu 75-83.

Haukar og Njarðvík eru jöfn og efst en KR og Valur eru tveimur stigum á eftir, Grindavík fjórum á eftir.

Nú er smá hlé á deildinni vegna landsleikja.

Njarðvík-Haukar 98-115 (21-30, 36-29, 18-29, 23-27)

Njarðvík: Brittany Dinkins 29/10 fráköst, Danielle Victoria Rodriguez 24/5 fráköst/5 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir 13/4 fráköst, Sofia Roma 13/4 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 8, Sara Björk Logadóttir 6, Krista Gló Magnúsdóttir 3, Inga Lea Ingadóttir 2, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0.

Haukar: Amandine Justine Toi 33/5 stoðsendingar, Krystal-Jade Freeman 26/11 fráköst, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 15/4 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 13/6 fráköst/5 stoðsendingar, Sólrún Inga Gísladóttir 11, Catherine Mosengo Masa 11/4 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 2, Lovísa Björt Henningsdóttir 2, Þóra Kristín Jónsdóttir 2/10 stoðsendingar, Agnes Jónudóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0, Ísabella Fjeldsted Magnúsdóttir 0.

Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Sófus Máni Bender

Áhorfendur: 154

Grindavík-Valur 75-83 (16-25, 22-16, 16-10, 16-19, 5-13)

Grindavík: Abby Claire Beeman 20/8 fráköst/10 stoðsendingar, Emilie Sofie Hesseldal 18/7 fráköst, Farhiya Abdi 14/10 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 9/10 fráköst, Ellen Nystrom 8/4 fráköst, Ólöf María Bergvinsdóttir 6, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0, Þórey Tea Þorleifsdóttir 0.

Valur: Reshawna Rosie Stone 42/5 fráköst, Alyssa Marie Cerino 21/14 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 10/7 fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr 8/5 fráköst/5 stoðsendingar, Sara Líf Boama 2/7 fráköst, Berta María Þorkelsdóttir 0, Ísey Ísis Guttormsdóttir Frost 0, Guðbjörg Sverrisdóttir 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0, Hanna Gróa Halldórsdóttir 0, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 0.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson, Friðrik Árnason

Áhorfendur: 68