Íþróttir

Mikilvægt að bjóða upp á fjölbreyttar íþróttir
Sunnudagur 31. júlí 2022 kl. 07:36

Mikilvægt að bjóða upp á fjölbreyttar íþróttir

segir Gunnar Örn Guðmundsson, íþróttakappi á áttæðisaldri.

„Ég elska stígvélakastið ... og mótið! Þetta er allt svo ægilega gaman,“ segir skipasmiðurinn og íþróttakappinn Gunnar Örn Guðmundsson. Hann skráði sig í fjölda greina á Landsmóti UMFÍ 50+ sem var haldið í Borgarnesi í lok júní og átti góðu gengi að fagna í mörgum þeirra. Gunnar tók þátt í stígvélakasti, frjálsum, skák og fleiri greinum og ætlaði að skrá sig í körfubolta. Svo margar voru greinarnar að hann náði aðeins hálfum leik í pútti áður en hann þurfti að haska sér til að keppa í frjálsum.

„Púttið var samt alveg skemmtilegt. Ég hafði bara aldrei prófað það áður,“ segir Gunnar og bætir við að hann hefði skráð sig í fleiri greinar ef þær hefðu verið í boði.

Það má reyndar segja að Gunnar sé með áskrift að mótinu því hann hefur mætt árlega frá því hann mætti á það fyrsta á Ísafirði árið 2016. Þá var hann 71 árs.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fjölbreytnin er mikilvæg

Íþróttaferill Gunnars er langur og fjölbreyttur. Hann var mikið á hreyfingu á sínum yngri árum, hóf ferilinn í körfubolta með Njarðvík og varð Íslandsmeistari í júdó um þrítugt. Hann varð margfaldur Íslandsmeistari í „old boys“-flokki í körfu.

Nú var Gunnar merktur Þrótti Vogum í bak og fyrir.

Gunnar, sem er 77 ára, segir það með skemmtilegri mótum að mæta á Landsmót UMFÍ 50+ því þar hitti hann menn sem hann hafi keppt við í körfubolta áður fyrr og hef ekki séð í 40 ár.

Gunnar hefur stundað allskonar íþróttir og auk þess tekið þátt í ýmsu sem telja má sem áhættuíþróttir, m.a. hefur hann skellt sér í sviffallhlífarstökki fram af 1.000 metra hárri klettabrún í Slóveníu. Gunnar hefur hlaupið og hjólað mikið en sjaldnar synt og hafði aðeins lært að synda fjórum árum áður en hann mætti á landsmótið á Ísafirði 2016. Þar keppti hann í fjórum greinum, þar á meðal í þríþraut og lenti í öðru sæti í 100 metra skriðsundi í aldursflokki 70–74 ára.

Gunnar leggur áherslu á að þótt markmiðið sé alltaf að reyna að vinna í keppnum þá verði gleðin yfir því að taka þátt að vera í forgangi og mikilvægt að prófa margar greinar.

„Það skiptir öllu máli,“ segir hann.