Vörumiðlun
Vörumiðlun

Íþróttir

Föstudagur 5. janúar 2001 kl. 11:10

Hverjir hafa verið að standa sig?

Jóhannes A. Kristbjörnsson hyggst taka upp fyrri iðju hér á Víkurfréttum og ausa vikulega úr viskubrunni sínum körfuknattleiksáhugamönnum til ómældrar ánægju. Athuga ber að JAK-inn er hættur að nota sterk lýsingarorð til að lýsa óánægju sinni með einstaka leikmenn og nýtir sér, þess í stað, orðatiltækið „náði sér ekki á strik“. Lesendum er frjáls að skipta þessu út fyrir eigin lýsingarorð og minnt er á skemmtileg orð eins og "hörmulegur", "mömmustákur", „týndur“, „ofþroskaður“ og svo auðvitað þetta klassíska „arfaslakur“.

Lærisveinar Vals komið mest á óvart
Fyrstu leikirnir í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á þessari öld fara fram í kvöld þegar Njarðvíkingar fá Tindastól í heimsókn en það er eini Suðurnesjaheimaleikur umferðarinnar því Grindvíkingar heimsækja Grafarvog og Keflavík Hafnarfjörð. Valur Ingimundarson hefur stýrt Sauðkræklingum á topp deildarinnar en þar sitja þeir ásamt firnasterku Keflavíkurliðinu sem hneppir verðlaunin "Grísapungar ársins" fyrir valið á Calvin Davis sem útlending. Hann hefur margsinnis borið liðið á herðunum (26,7 stig, 15,8 fráköst og 4 varin skot á leik) þegar skytturnar hafa brugðist. Á milli næstu 8 liða eru aðeins 8 stig sem þýðir í raun að óvenju margir leikir verða svonefndir fjögurra stiga leikir, þ.e.a.s sigur breytir stöðu liðsins um 4 stig gagnvart tapliðinu og öfugt. Á botninum hvíla Ísfirðingar og Valur/Fjölnir en bæði liðin (2 stig hvort) sýndu batamerki rétt fyrir jólafrí. Tapleikir gegn þessum liðum gætu skilið á milli feigs og ófeigs í toppbaráttunni. Þeir sem duglegir hafa verið að gagnrýna deildarkeppnina verða í vandræðum þetta árið því hver leikur sem eftir er nokkurs konar bikarleikur, eitt tap núna, gæti kostað liðið 3-4. sæti í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.

Keflavík
Calvin, Calvin, Calvin. Þessi langi rólyndispiltur er skrímsli undir körfunni. Án hans væri staða liðsins önnur. Næstu fýsilegu sóknarkostir hafa verið Magnús Gunnars, Guðjón Skúla og Albert Óskars, þegar hann lætur sjá sig, sem allir hafa leikið vel. Guðjón er skytta af guðs náð og miskunn og viðvera hans ein, standandi úti í horni með bros á vör, hefur veitt Calvin það frelsi sem þarf í teignum. Magnús leysir erfiða hluti vel, hikstar ekki við að taka af skarið á úrslitastundu og er framtíð þessa liðs holdi klædd. Hjörtur Harðar hefur stjórnað liðinu í fjarveru Fals Harðar en verið annaðhvort uppi eða niðri, kannski í réttu hlutfalli við hitastigið á skyttum liðsins. Hinn ofurgranni Jón Nordal Hafsteins lék vel framanaf og uppfyllti þá allar þær vonir sem vöknuðu eftir frábæra frammistöðu í Norðurlandamótinu en dalaði er á leið og leikur landsliðsmannanna Gunnars Einars og Birgis Birgis hefur valdið "aðdáendum þeirra vonbrigðum". Besti leikmaður 1. deildar á síðasta ári, Birgir Guðfinnsson, hefur ekki náð sér í mínútur svo marktækt sé og sýnir svo ekki verður um villst muninn á deildunum tveimur.

Njarðvík
Njarðvíkurliðinu var spáð titlinum en er úr leik í bikarnum og féll gegn Grindavík í Kjörísbikarnum. Það verður því að segja að staða liðsins sé vonbrigði. Brenton (Brjánsson) Birmingham er eins og landi (enn um sinn) hans Calvin Davis besti leikmaður síns liðs. Njarðvíkingar fengu einnig til liðs við sig Danann Jes V. Hansen og eru menn ekki á eitt sáttir varðandi frammistöðu hans. Eitt er víst, að "danska skinkan" eins og gárungarnir kalla pilt verður að vera meira en hátíðarmáltíð til að verða ekki sendur heim núna þegar landsliðsmiðherjinn Friðrik Stefáns er snúinn aftur frá Finnlandi. Logi Gunnars hefur reynst hrein skemmtun að fylgjast með, sóknarmegin á vellinum, og skorað 20,2 stig að meðaltali en vörnin hefur verið, eins og reyndar hjá liðinu öllu, glopótt í meira lagi. Ragnar Ragnars og Halldór Karls hafa gert góða hluti en þeir félagarnir, Teitur Örlygs og Friðrik Ragnars, sem einnig eru þjálfarar liðsins hafa ekki náð sér á strik. Teitur þarf að leita aftur til tímabilsins 1985-1986 (2,7 stig) til að finna tímabil sem hann skoraði jafnfá stig að meðaltali. Að vísu er ósanngjarnt að benda aðeins á skoruð stig því Teitur stendur sig vel á fjölmörgum öðrum sviðum, en svona er þetta nú samt. Leikstjórnandinn Friðrik skilar, líkt Hirti kollega sínum í Keflavík, stoðsendingunum í hús en skotin er of mörg sem enda úti á túni í stað hlöðunnar hlýju. Þeir Sævar Garðarsson og Ásgeir Guðbjartsson eru í of takmörkuðum hlutverkum til að telja þó Sævar hafi nú náð inn á óskalista DV í "ef allir spiluðu nú 40 mínútur á leik leiknum" og skákað þjálfara sínum Teiti á því svellinu. Ó, hve lífið væri auðvelt ef þessi formúla gengi upp. Friðrik "Trölli" Stefáns heimtu Njarðvíkingar úr Finnlands-helju og hver veit nema piltur komi þeim á bragðið, varnarbragðið það er að segja, en þá yrði Njarðvíkurliðið hættulegt.

Grindavík
Grindvíkingar urðu Kjörísbikarmeistarar í fyrsta sinn, eru enn í bikarkeppni KKÍ og eiga því einir liða möguleika á að landa öllum titlum ársins. Stóru titlunum. Þeir gáfu þó eftir í deildinni rétt fyrir jólafrí og sitja í 7. sæti deildarinnar, nokkuð neðar en þeir eiga að venjast. Sjávarþorpsbúarnir sjálfir segja töp liðsins í síðustu leikjunum tengjast að mestu meiðslum erlenda leikmannsins Kim Lewis. Þegar jólafríið hófst var ljóst að meiðsl Lewis yrðu of langvinn til að hægt væri að bíða og náðu Grindvíkingar sér í staðgengil, Kevin Daley. Daley er 24 ára bandaríkjamaður og 197 cm á hæð. Páll Vilbergs (stigahæstur íslenskra leikmanna með 21,5 stig að meðaltali) og Guðlaugur Eyjólfs hafa verið stöðugastir Grindvíkinga og þarf liðið á góðum leik þeirra að halda til að vinna leiki. Fyrirliðinn Pétur Guðmunds skilar ávallt sínu en hefur fært sig upp á skaftið í sóknarleiknum og liðið oft misst hann úr hefðbundnu sirkushlutverki sínu, sem er að halda öllum hinum í jafnvægi, fyrir vikið. Bergur Hinriks hefur reynst Einari þjálfara góður skyndibiti og sett niður þriggja stiga hraðar en starfsfólk Kentucky Fried raðar á bakkana en hlutverk hans er ekki stórt. Nýliðarnir þrír, Keflvíkingarnir Kristján Guðlaugs, Elentínus Margeirs og Davíð Jónsson, hafa ekki spilað eins stór hlutverk og margir ætluðu þeim og Dagur Þóris hefur ekki náð sér á strik. Það verður erfitt fyrir nýja útlendinginn Kevin Daley að taka við hlutverki Kims Lewis og erfitt fyrir kröfuharða grindvíska áhorfendur að sætta sig við nokkuð minna.

VF-spáin
Keflvíkingar með Fali Harðars heilan heilsu og þá Gunnar Einars og Birgi Birgis "á strikinu" reynist ofjarl króksara(4 .sæti, vesturbæinga(3. sæti) og austurbæinga (2. sæti) í harði baráttu um Íslandsmeistaratitilinn! Liðin finna lausn gegn Calvin en hleypa púkunum af sperrunum (sleppa skyttunum lausum) sem reynist dýrkeypt á úrslitastundu. Grindvíkingar jafna sig ekki af því að missa Kim Lewis á miðju tímabili en taka bikarinn í úrslitaleik gegn KR. Friðrik Stefánsson getur ekki stoppað í öll götin á Njarðvíkurvörninni þótt stór sé og sterkur og Njarðvíkurliðið fellur gegn nágrönnunum í æsispennandi úrslitarimmu.

Kemur úr NIAA deildinni
Nýi Bandaríkjamaðurinn í liði Grindvíkinga, Kevin Daley, lék á háskólaferli sínum í einni af neðri deildum bandaríska háskólaboltans, NIAA. Þar lék hann með Azusa háskólanum og skilaði liði sínu 22,6 stig og rúmlega 8 fráköstum á leik. Eftir að skólanum lauk hefur hann leikið í Taiwan og í Costa Rica við góðan orðstý. Hann þykir háloftafugl og góð skytta. Hann leikur með Grindvíkingum í kvöld gegn Valsmönnum í Grafarvoginum.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024