Hola í höggi í fyrsta texas-móti Mustad í Grindavík um Sjómannahelgina
Það var líf og fjör á Húsatóftavelli Golfklúbbs Grindavíkur á laugardaginn um Sjómannahelgina en þá var texas scramble mót aftur sett á laggirnar en hefð var fyrir því móti fram að jarðhræringum og ákváðu Sigurður Óli Þórleifsson, eigandi Mustad og Njóttu ferða, og starfsmaður hans, Haukur Guðberg Einarsson, að tryggja sér nafnaréttinn á mótinu í ár.
M.v. viðtökurnar er ljóst að mótið er komið til að vera en hægt er að lesa umfjöllun um mótið og sjá viðtöl við Sigurð og kylfinginn Jón Gauta Dagbjartsson en hann gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í mótinu og ekki nóg með það, Gauti var að ná draumahögginu í annað skipti á skrautlegum golfferli sínum.
Umfjöllun og viðtöl á kylfingur.is