HSS
HSS

Íþróttir

Njarðvík gerði jafntefli og fyrsta tap Þróttar
Njarðvíkingar fögnuðu einu sinni í kvöld en það mark gaf bara jafntefli.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 4. júní 2025 kl. 23:03

Njarðvík gerði jafntefli og fyrsta tap Þróttar

6. umferð Lengjudeildar karla fór fram í kvöld en leik Grindavíkur og Keflavíkur var frestað þar sem einn leikmaður úr hvoru liði er í U-19 landsliðshópi Íslands. Tveir leikmenn úr Njarðvík voru líka valdir en samt lék Njarðvík í kvöld og gerði jafntefli á heimavelli á móti Fjölni, 1-1.
Í 2. deild fengu Þróttarar magalendingu með sínu fyrsta tapi í sex leikjum, töpuðu á heimavelli gegn Ægi úr Þorlákshöfn, 1-2.

Lengjudeild

Njarðvík - Fjölnir 1-1

Njarðvíkingar lentu undir á 82. mínútu en Svavar Örn Þórðarson jafnaði á 84. mínútu og þar við sat. Athygli vakti að hvorki Davíð Helgi Aronsson eða Freysteinn Ingi Guðnason, voru í leikmannahópi Njarðvíkur en þeir voru valdir í U-19 ára landslið Íslands eins og Gabríel Aron Sævarsson, leikmaður Keflavíkur, og Christian Bjarmi Alexandersson, leikmaður Grindavíkur. Eins og kom fram í inngangi fréttarinnar, var leik Grindavíkur og Keflavíkur frestað vegna þátttöku leikmanna liðsins í landsliðsverkefinu.

Njarðvík í öðru sæti í deildinni með 12 stig, tveimur stigum inna en ÍR sem er í efsta sæti. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

2. deild

Þróttur - Ægir 1-2

Rúnar Ingi Eysteinsson var áfram á skotskónum og kom Þrótturum yfir á 45. mínútu en Ægismenn svöruðu með tveimur mörkum í seinni hálfleik.

Þróttur eftir sem áður efstir í deildinni með 15 stig, næstir koma Ægismenn með 13 stig