Halldór og Hilmar áfram í Keflavík
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur skrifað undir tveggja ára samninga við tvo afburðaleikmenn, Halldór Garðar og Hilmar Pétursson.
Halldór Garðar er reynslumikill og traustur leikmaður sem hefur verið fyrirliði liðsins síðustu ár. Hann hefur sýnt mikla leiðtogahæfileika bæði innan vallar sem utan og verður áfram lykilmaður í uppbyggingu liðsins á komandi tímabilum.
Hilmar á eftir að kemur sterkur inn í vetur og á eftir að gegna mikilvægu hlutverki í liði félagsins. Hann átti við þrálát meiðsli að stríða síðasta tímabíl en kemur tvíefldur inn.
„Það er afar ánægjulegt að ná samningum við Halldór og Hilmar. Halldór hefur verið burðarás í liðinu og Hilmar er leikmaður sem við höfum mikla trú á að geti tekið stórt skref fram á við með okkur,“ segir Magnús Þorsteinsson formaður KKDK á Facebook-síðu körfunnar í Keflavík
Með þessum framlengingum styrkist liðið verulega og undirstrikar markmið deildarinnar um að halda áfram að þróa öflugt og samkeppnishæft lið, segir jafnframt.