Voga-Þróttarar á blússandi siglingu með fullt hús stiga
Ekkert lát er á gengi Þróttara úr Vogum en þeir hafa unnið alla fimm leiki sína til þessa í 2. deildinni og eru komnir með örugga forystu á toppnum. Víðismönnum gengur ekki eins vel og eru í níunda sæti. Í 3. deildinni eru Reynismenn um miðja deild eftir jafntefli í síðustu umferð. Fulltrúar 4. deildar eru Hafnarmenn, þeir hafa ekki farið vel af stað og eru með einn sigur og þrjú töp til þessa. Í 5. deildinni er það lið RB sem kemur fram fyrir hönd Suðurnesjanna og hafa þeir farið vel af stað, eru á toppnum ásamt öðru liði eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum.
2.deild
KFA - Þróttur Vogum 0-3
Rúnar Ingi Eysteinsson með fyrstu tvö mörk Þróttara og hefur heldur betur verið á eldi í síðustu þremur leikjum, skoraði fjögur mörk í þeim og er næst markahæstur í deildinni. Þriðja markið skoraði Birgir Halldórsson.
Víðir - Grótta 1-1
David Toro Jiminez kom Víði yfir úr víti á 41. mínútu en Grótta jafnaði í upphafi seinni hálfleiks og þar við sat.
3. deild
Reynir - Ýmir 3-3
Reynismenn lentu 0-3 undir og þannig var staðan í hálfleik. Jökull Máni Jakobsson minnkaði muninn á 70. mínútu og Jordan Smylie skoraði tvö, jöfnunarmarkið á 90. mínútu!
4. deild
Hafnir - Árborg 1-4
Mark William Leitch kom Hafnarmönnum yfir en Adam var ekki lengi í paradís, Árborgarmenn svöruðu með fjórum mörkum. Hafnir í 8. sæti með 4 stig.
5. deild
BF 108 - RB 0-1
Roberto Adompai með mark Reykjanesbæinga.