Íþróttir

Haukur Helgi er klár í slaginn
Haukur Helgi samdi við Njarðvík síðasta sumar en hann hefur ekkert getað leikið síðan í mars vegna meiðsla. Mynd og frétt af vef UMFN
Þriðjudagur 30. nóvember 2021 kl. 10:50

Haukur Helgi er klár í slaginn

Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er klár í slaginn og mun leik næsta heimaleik Njarðvíkur sem er í Ljónagryfjunni gegn Vestra næsta föstudag.

„Ég er tilbúinn í nokkrar mínútur núna gegn Vestra en stefni að því að vera orðinn nokkuð sprækur í næsta bikarleik,“ sagði Haukur í samtali við heimasíðu UMFN. Sá leikur er gegn Valsmönnum 13. desember.

„Maður er að reyna að vera skynsamur og fara ekki of geyst í hlutina. Það á allt að vera gróðið en nú vantar bara upp á snerpu, sprengikraft og leikform.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Haukur meiddist alvarlega á ökkla í marsmánuði 2021, þá sem leikmaður Morabanc Andorra. Hann hefur ekkert leikið síðan þá en hann samdi við Njarðvíkinga í sumar til næstu þriggja ára.

Tengdar fréttir