Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Góður árangur sundfólks á Reykjavíkurleikunum
Árangur Evu Margrétar Falsdóttur á Reykjavíkurleikunum tryggði henni þátttökurétt á Evrópumót unglinga. Myndir: ÍRB
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 10. febrúar 2021 kl. 08:48

Góður árangur sundfólks á Reykjavíkurleikunum

Það var mikill kraftur í sundfólki ÍRB á Reykjavíkurleikunum (RIG) en þetta var fyrsta opna sundmótið sem haldið hefur verið síðan í júlí. Miklar bætingar og stórgóður árangur hjá sundfólkinu. Fannar Snævar Hauksson vann sigur í 100m og 200m flugsundi. Þar náði hann lágmörkum inn í unglingalandsliðshóp SSÍ. Katla María Brynjarsdóttir náði lágmörkum inn í Framtíðarhóp SSÍ þegar hún kom þriðja í mark í 800m skriðsundi. Bestum árangri náðu þau Már Gunnarson og Eva Margrét Falsdóttir.

Eva Margrét tryggði tryggði sig inn á Evrópumeistaramót unglinga í sumar

Eva Margrét Falsdóttir kom langfyrst í mark í tveimur greinum, 400m fjórsundi þegar hún sigraði greinina á tímanum 5:03,37, og 200m bringusundi þegar hún synti á tímanum 2:37,57. Í báðum greinunum náði hún lágmörkum á Evrópumeistaramót unglinga (EMU) sem áætlað er að fari fram 6.–11. júlí í sumar. Ekki hefur verið staðfest hvar mótið mun fara fram. Hún var einnig hárbreidd frá EMU lágmarki í 400m skriðsundi sem var aukagrein hjá henni, þar endaði hún önnur eftir mjög spennandi keppni. Eva Margrét varð jafnframt fjórði stigahæsti sundmaður Reykjavíkurleikanna í sundi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Már Gunnarsson ásamt Steindóri Gunnarssyni, yfirþjálfara sunddeildar ÍRB.

Þrjú Íslandsmet Más

Már setti þrjú Íslandsmet um helgina, eitt í 50m baksundi og tvö í 200m baksundi. Góð staðfesting fyrir hann á forminu en Már stefnir á góðan árangur á Ólympíuleikunum í sumar.

Már sagði á Facebook að frammistaða sín á Reykjavíkurleikunum nú um helgina væri sú besta til lengri tíma. „Samtals þrjú Íslandsmet. En það sem ég er stoltastur af er sekúndu bæting í 50m baksundi. Frábær undirbúningur fyrir komandi tíma.“