Frækinn sigur Grindvíkinga á heimavelli á móti HK
Grindavík náði að tryggja sér sigur á HK á heimavelli eftir að hafa lent 0-1 undir og misst leikmann út af með rautt spjald. Jöfnunarmarkið kom á 83. mínútu og sigurmarkið á 87.
HK komst yfir á 34. mínútu og það blés ekki byrlega fyrir Grindavík, hinn efnilegi Christian Bjarmi Alexandersson sem lék með U-19 ára landsliði Íslands í vikunni, þurfti að fara út af meiddur á 53. mínútu og er óttast að hann sé handleggsbrotinn.
Það bættist svo við ógæfu Grindvíkinga þegar Adam Árni Róbertsson, fyrirliði, fékk tvö gul spjöld með tveggja mínútna millibili og Grindavík einum færri frá 71. mínútu. Heimamenn létu það ekki á sig fá og skoruðu tvö mörk í lokin, Sindri Þór Guðmundsson jafnaði eftir að Ármann Ingi Finnbogason hafði átt frábær rispu upp kantinn og lagt boltann fyrir Sindra. Dennis Nieblas skoraði svo sigurmarkið eftir hornspyrnu Ármanns Inga. Frábær sigur Grindvíkinga staðreynd!