HSS
HSS

Fréttir

Tímamót í samstarfi ungmenna og stjórnvalda í Reykjanesbæ
Sunnudagur 8. júní 2025 kl. 22:33

Tímamót í samstarfi ungmenna og stjórnvalda í Reykjanesbæ

Ungmennaráð Reykjanesbæjar afhenti á seinni fundi þess 20. maí með bæjarstjórn skýrslu sem unnin var úr niðurstöðum barna- og ungmennaþings Reykjanesbæjar 2025, sem Ungmennaráðið hélt í Stapa 3. apríl síðastliðinn.

Á fundinum var bleikt þema, sem var þemalitur þingsins, og fulltrúar ungmennaráðsins færðu bæjarstjórninni bleikar derhúfur með merkinu „Verum örugg,“ sem var einmitt yfirskrift þingsins. Á dagskrá fundarins voru erindi sem flutt voru af ungmennaráðinu og tengdust meðal annars netnotkun barna, umgengni í skólum, hvatagreiðslur og önnur mikilvæg málefni sem varða velferð og öryggi ungmenna. Ungmennaráðið lagði áherslu á að koma að málum sem skipta máli fyrir börn og ungmenni í Reykjanesbæ og að þau séu hluti af ákvarðanatöku í samfélaginu. 

Skýrslan og niðurstöður hennar var sett upp og unnin af meðlimum ráðsins undir handleiðslu umsjónarmanna ráðsins. „Fundurinn markaði ákveðin tímamót í samstarfi ungmenna og stjórnvalda í Reykjanesbæ og var mikilvægur vettvangur fyrir ungmennin til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Þetta sýndi einnig fram á mikilvægi þess að hlusta á rödd ungs fólks og byggja samfélagið á traustum grundvelli þar sem þátttaka og samráð séu í fyrirrúmi. Með þessu jókst skilningur og samstaða milli bæjarstjórnar og ungmennahópsins, sem stuðlar að betri ákvarðanatöku og lýðræðislegri þátttöku til framtíðar“, segir í frétt frá Ungmennaráðinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Niðurstöður ungmennaþings