Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Elvar Már meðal ellefu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2022
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 26. desember 2022 kl. 11:07

Elvar Már meðal ellefu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2022

Körfuknattleiksmaðurinn Elvar Már Friðriksson úr Njarðvík er meðal ellefu efstu í kjöri um Íþróttamann ársins á Íslandi. Samtök íþróttafréttamanna standa að kjörinu.

Í ár gerðist það að tveir íþróttamenn urðu jafnir að stigum í 10. - 11. sæti. Reglur kjörsins segja aðeins til um hvað gera eigi séu tveir jafnir í 1. sæti. Reglurnar ná ekki yfir sætin fyrir neðan. Það eru því 11 íþróttamenn á topp listanum í ár. Það gerðist síðast árið 2000. Alls hefur það sjö sinnum gerst að topp 11 listi hefur verið birtur í stað topp 10.  Árin 1963, 1978, 1982, 1984, 1985, 1988 og 2000 var topp 11 listi, þ.e. tveir jafnir í 10. sæti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þá gerðist það einnig að tveir þjálfarar urðu jafnir í þriðja sæti í kjörinu um þjálfara ársins. Með sömu rökum er því birtur listi yfir fjóra efstu þjálfara kjörsins í ár.

Ellefu efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2022 eru í stafrófsröð:

Anton Sveinn McKee, sund

Elvar Már Friðriksson, körfubolti

Gísli Þorgeir Kristjánsson, handbolti

Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf

Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir

Kristín Þórhallsdóttir, kraflyftingar

Ómar Ingi Magnússon, handbolti

Sandra Sigurðardóttir, fótbolti

Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti

Viktor Gísli Hallgrímsson, handbolti

Efstu fjórir í kjörinu á þjálfara ársins

Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta

Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta

Lið ársins

Íslenska karlalandsliðið í handbolta

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta

Valur, meistaraflokkur karla í handbolta

Félagar í Samtökum íþróttafréttamanna eru nú 31 og tóku þeir allir þátt í kjörinu í ár. Kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni, liði og þjálfara ársins 2022 verður lýst í Hörpu 29. desember. Sýnt verður beint frá hófinu á RÚV klukkan 19:40.

Hér má sjá lista yfir þá sem eru í samtökunum.