Fréttir

Vilja flytja nýtt raðhús úr Grindavík í Garðinn
Lóðir í öðrum áfanga Teiga- og Klapparhverfis verða ekki byggingahæfar fyrr en á vormánuðum.
Mánudagur 8. apríl 2024 kl. 06:09

Vilja flytja nýtt raðhús úr Grindavík í Garðinn

Kimar ehf. hafa óskað eftir lóð í Garðinum í Suðurnesjabæ fyrir nýtt fimm íbúða einingaraðhús sem yrði flutt af grunni úr Grindavík á nýja lóð.

Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar segir í afgreiðslu sinni á umsókninni að lóðir í öðrum áfanga Teiga- og Klapparhverfis verða ekki byggingahæfar fyrr en á vormánuðum. Núgildandi úthlutunarreglur um lóðir í Suðurnesjabæ gera ráð fyrir því að almennt séu allar lóðir auglýstar til umsókna sem eru til úthlutunar. Ráðið getur því ekki orðið við þeirri ósk að ráðstafa sérstaklega lóðum til almennra byggingaraðila nema Suðurnesjabær felli úr gildi eða breyti núverandi reglum um úthlutun lóða.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024