Fréttir

Hringanórinn úr Njarðvík þyngist og braggast
Hringanórinn sem lögrelgan á Suðurnesjum handsamaði í Njarðvík er nú í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í góðu yfirlæti.
Mánudagur 24. febrúar 2020 kl. 14:03

Hringanórinn úr Njarðvík þyngist og braggast

„Hringanórinn sem kom hingað í garðinn fyrir nokkrum vikum er nú farinn að braggast. Eins og fram hefur komið áður reyndist hann sýktur á auga og illa haldinn af næringarskorti. Þessi ungi selur, sem nefndur hefur verið Kári, er fæddur vorið 2019. Heimkynni hringanóra eru á og við ísröndina norður af landinu. Við frekari rannsóknir á selnum kom í ljós að hann var einnig sýktur af sníkjudýrum, m.a. af lungnaþráðormi. Sú tegund sníkjuorma sem þar greindist hefur raunar ekki fundist áður hér á landi,“ segir í færslu á fésbókinni frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, þar sem fjallað er um hringanórann sem lögreglan á Suðurnesjum handsamaði við Skipasmíðastöð Njarðvíkur á dögunum..

Sníkjudýr geta reynst selum sem orðnir eru heilsuveilir og horaðir hættuleg. Lungnaormar krækja sig fasta í þekjuvef lungna og berkja og geta þar valdið bólgum og sýkingum sem aftur draga mjög úr köfunarhæfni selanna og torvelda þeim þannig fæðunám. Ekki er ólíklegt að slík hafi verið raunin hjá þessum sel enda vóg hann einungis 7,6 kg við komuna hingað. Eðlileg þyngd tegundarinnar eftir um 8 vikur á spena er um 20 kg.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Nú er hins vegar búið að meðhöndla þá kvilla sem hér eru taldir upp og selurinn, sem nefndur er Kári, er farinn að taka hressilega til matar síns. Þessa dagana étur hann um 8 síldar daglega og er nú orðinn rúmlega 10 kíló. Yfir daginn er Kári úti við þar sem hann virðist kunna best við sig í snjónum en á nóttunni er hann í sérstakri innilaug fullri af sjó. Í þessu máli höfum við notið ráðgjafar frá selasetri Íslands á Hvammstanga sem og frá sérfræðingum á selabjörgunarstöðvar á Írlandi og dýralækni í Alaska,“ segir jafnframt í færslu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.

Ef heldur fram sem horfir og Kári heldur áfram að þyngjast hratt verður vonandi hægt að sleppa honum aftur. Í því sambandi verður að horfa sérstaklega til eftirfarandi. Aukin þyngd hans og betri heilsa við sleppingu eykur lífslíkur hans í náttúrunni. Á móti dregur lengri dvöl hans í haldi manna úr líkum þess að hann geti bjargað sér í náttúrunni.

„Það er því mikilvægt að finna jafnvægi á milli þessara þátta til þess að tryggja sem besta möguleika Kára. Gestir garðsins geta heimsótt Kára þar sem hann er úti við yfir hádaginn,“ segir að lokum.