Fréttir

Dekkjum og felgum stolið undan bílaleigubíl - margir þjófnaðir tilkynntir
Þriðjudagur 29. október 2019 kl. 09:55

Dekkjum og felgum stolið undan bílaleigubíl - margir þjófnaðir tilkynntir

Allmargar tilkynningar um þjófnaði hafa borist lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Um helgina var lögreglunni tilkynnt að fjórum felgum með hjólbörðum hefði verið stolið undan bílaleigubifreið í umdæminu. Þegar að var komið stóð bifreiðin á undirvagninum öðru megin en á tjakk hinum megin.
Þá var tilkynnt um að vespu hefði verið stolið í Keflavík og að einhver eða einhverjir hefðu látið greipar sópa í skáp í búningsklefa í Bláa lóninu. Enn fremur var einstaklingur gripinn þar sem hann hafði tekið tvær tannkremstúpur, vítamínglas og límstifti úr verslun í umdæminu og  tveir til viðbótar urðu uppvísir að þjófnaði í annari verslun sem stolið höfðu tveimur rakspíraglösum.
Loks barst tilkynning um ítrekaðan þjófnað úr komuverslun fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Talið er að heildarverðmæti varningsins sem stolið hefur verið nemi um 150 þúsund krónum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024