Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Ammar og Karrar hlutu viðurkenningu Rauða krossins fyrir hugrekki í bruna í Reykjanesbæ
Helena Björk Rúnarsdóttir, fulltrúi Rauða krossins í aðgerðastjórn neyðarvarna á Suðurnesjum, og Guðbergur Reynisson, verkefnastjóri neyðarvarna hjá Suðurnesjadeild Rauða krossins, ásamt feðgunum Karrar og Ammar og fjölskyldu þeirra á 112-deginum í Reykjanesbæ þar sem þeim var afhent viðurkenningin.
Miðvikudagur 18. febrúar 2026 kl. 10:28

Ammar og Karrar hlutu viðurkenningu Rauða krossins fyrir hugrekki í bruna í Reykjanesbæ

Feðgarnir Ammar Jabbar og Karrar Radhi fengu viðurkenningu frá Rauða krossinum á Suðurnesjum á 112-deginum fyrir snör viðbrögð og hugrekki þegar þeir reyndu að bjarga nágranna sínum út úr brennandi íbúð í Reykjanesbæ í janúar.

Að sögn Rauða krossins var viðurkenningin veitt vegna þess að feðgarnir brugðust hratt við aðstæðum og reyndu að koma í veg fyrir enn alvarlegri afleiðingar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Feðgarnir og fjölskylda þeirra segjast afar þakklát fyrir þann hlýhug sem samfélagið í Reykjanesbæ og bæjaryfirvöld hafi sýnt þeim í kjölfar brunans.

Við afhendinguna fengu feðgarnir einnig skyndihjálpartösku að gjöf auk skyndihjálparnámskeiðs frá Rauða krossinum.

Rauði krossinn minnir á að verði fólk vart við hættu eða neyð eigi að hringja strax í 112 og bregðast við eftir bestu getu, án þess að setja sig sjálft í hættu.