112-dagurinn: Lögreglustöðin opnuð almenningi í fyrsta sinn
112-dagurinn var haldinn hátíðlegur í Reykjanesbæ miðvikudaginn 11. febrúar sl., þar sem lögreglan stóð fyrir viðburði í samstarfi við Rauða krossinn og Brunavarnir Suðurnesja. Dagurinn tókst afar vel og var þátttaka íbúa góð.
Í tilefni dagsins var lögreglustöðin opnuð almenningi í fyrsta sinn, sem vakti mikla ánægju. Fjöldi fólks lagði leið sína á stöðina og var sérstaklega ánægjulegt að taka á móti yngstu gestunum – „ungu upprennandi lögreglumönnunum“ – sem létu sig ekki vanta og skoðuðu aðstæður og starfsemina af áhuga.
Einnig mættu á staðinn einstaklingar sem hafa sótt um inngöngu í lögreglunám og nýttu tækifærið til að spyrja ýmissa spurninga um námið og starf lögreglu. Starfsfólk svaraði fyrirspurnum og veitti gestum upplýsingar um ferlið og starfshlutverk lögreglunnar.
Að dagskrá lokinni á lögreglustöðinni hélt hópurinn síðan í heimsókn til slökkviliðsins, þar sem boðið var upp á kynningu og dagskrá í tengslum við 112-daginn. Þar voru meðal annars veittar viðurkenningar í litasamkeppni sem haldin var í tilefni dagsins en nemendur yngstu stiga grunnskóla í umdæminu tóku þátt. Samkeppnin vakti mikla lukku og sýndi að margir efnilegir listamenn eru á meðal grunnskólanema á Suðurnesjum.
Í tilkynningu þakka aðstandendur 112-dagsins öllum sem tóku þátt og lögðu leið sína á viðburðinn á lögreglustöðinni og slökkvistöðinni og segja að þau séu þegar farin að hlakka til næsta 112-dags.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi í tilefni dagsins.





