Nýtt efni í Hlaðvarpi Víkurfrétta
Við vekjum athygli á tveimur nýjum viðtölum í Hlaðvarpi Víkurfrétta.
Í hlaðvarpið er komið viðtal við Vilhjálm Árnason, nýkjörinn oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Einnig er viðtal við Þuríði Ingibjörgu Elísdóttur sem veitir 140 rýma hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ forstöðu.
Fyrir í hlaðvarpinu eru fjölmörg viðtöl sem voru í jólaútgáfu Víkurfrétta og framundan er meira efni. Þannig verður rætt við oddvita annarra framboða í sveitarstjórnarkosningum sem eru framundan, svo eitthvað sé nefnt.
Hér er tengill á Hlaðvarp Víkurfrétta.





