Íslandsbanki
Íslandsbanki

Fréttir

Gáfu hjartastuðtæki fyrir Gosa
Á myndinni eru fulltrúar svæðisstjórnar björgunarsveitanna á svæði 2 í stuði með nýja stuðtækið og fulltrúa HS Orku í forgrunni.
Miðvikudagur 18. febrúar 2026 kl. 09:41

Gáfu hjartastuðtæki fyrir Gosa

Á 112-deginum í síðustu viku var ný bifreið til vettvangsstjórnunar tekin í notkun af svæðisstjórn björgunarsveita á Suðurnesjum. Bifreiðin hefur fengið nafnið Gosi. Af þessu tilefni gaf HS Orka nýtt hjartastuðtæki í bifreiðina en brýnt er að hún sé búin besta búnaði sem völ er á.

Gosi mun gegna lykilhlutverki í viðbrögðum við náttúruvá á Suðurnesjum en reynslan af Reykjanesskaganum hefur kennt okkur öllum hve mikilvægt er að geta tafarlaust samhæft aðgerðir og ákvörðunartöku á vettvangi.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk