Voganeistinn – hugmyndir og tækifæri í Vogum
Frístunda-, menningar- og íþróttalíf færir samfélaginu líf. Þar hittist fólk, tengist og byggir upp sterkara samfélag. Þar kvikna líka hugmyndir sem geta vaxið og orðið að einhverju stærra.
Í Vogum er mikið af fólki með kraft, frumkvæði og vilja til að gera meira fyrir samfélagið sitt. Fólk vill standa fyrir nýjum verkefnum, efla félagslíf, skapa ný tækifæri fyrir börn og ungmenni eða bæta menningar- og íþróttastarf í sveitarfélaginu. En of oft stoppa góðar hugmyndir áður en þær ná flugi.
Ástæðurnar eru yfirleitt ekki flóknar. Það getur vantað smá stuðning, aðstöðu, leiðbeiningar eða einfaldlega smá fjárhagsaðstoð til að koma verkefni af stað.
Þess vegna viljum við setja á laggirnar Voganeistann – nýjan framtakssjóð á sviði frístunda, menningar og íþrótta.
Markmið sjóðsins er að styðja við ný verkefni og fjölbreyttara framboð íþrótta, tómstunda og menningar í sveitarfélaginu. Með honum viljum við skapa jarðveg þar sem hugmyndir íbúa og félagasamtaka fá raunverulegt tækifæri til að verða að veruleika.
Það getur verið nýtt frístundastarf fyrir börn og ungmenni, skapandi námskeið, menningarviðburðir, nýjar íþróttagreinar eða verkefni sem styrkja samfélagið í sveitarfélaginu með einhverjum hætti. Með Voganeistanum viljum við gera frumkvæði sýnilegra og aðgengilegra.
Þetta skiptir máli vegna þess að samfélag verður ekki sterkt af sjálfu sér. Það verður sterkt þegar fólk fær tækifæri til að taka þátt, skapa og hafa áhrif á sitt nærumhverfi.
Við sjáum að þörfin fyrir fjölbreyttara framboð er að aukast. Vogar eru í örum vexti og með fjölgun íbúa aukast bæði kröfur og tækifæri. Börn og ungmenni eru ólík og áhugasvið þeirra mismunandi. Það er ekki sjálfgefið að öll börn finni sig í sama starfi eða sömu íþróttum. Þess vegna þurfum við að breikka faðminn og skapa fleiri möguleika. Þar geta lítil verkefni haft mikil áhrif.
Með Voganeistanum erum við ekki bara að styrkja verkefni. Við erum að fjárfesta í fólkinu sem mótar samfélagið okkar. Við erum að styðja við þátttöku, frumkvæði og nýjar hugmyndir sem geta gert Voga að enn öflugra og líflegra samfélag.
Guðmann Rúnar Lúðvíksson
skipar 2. sæti D-listans - Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum.






