Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Núna skiptir framtíðarsýnin máli
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 11:56

Núna skiptir framtíðarsýnin máli

Kæru bæjarbúar.

Síðustu vikur höfum við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins átt ótal samtöl við íbúa sveitarfélagsins okkar. Samtöl við fólk sem elskar samfélagið sitt og vill sjá það blómstra enn frekar á komandi árum. Það sem stendur upp úr er skýrt ákall um breytingar.

Aðalbros
Aðalbros

Fólk vill meiri festu í ákvarðanatöku, skýrari framtíðarsýn og stjórnun sem byggir á ábyrgð, samvinnu og trausti. Við finnum fyrir þessum meðbyr og þeirri von sem margir bera til framtíðarinnar.

Á sama tíma finn ég líka að fólk vill yfirvegaða forystu. Forystu sem hlustar, sameinar og setur hagsmuni íbúanna alltaf í fyrsta sæti.

Þessar kosningar snúast ekki um slagorð eða pólitísk átök. Þær snúast um hvers konar samfélag við viljum byggja saman.

Viljum við halda áfram á sömu braut? Eða viljum við nýja sýn og nýja orku inn í stjórnun sveitarfélagsins? Það er eðlilegt að fólk velti fyrir sér fortíðinni þegar horft er til framtíðar. Listi Sjálfstæðisflokksins í dag er skipaður nýju fólki með nýja sýn, nýja nálgun og skýran vilja til að byggja upp sterkt og ábyrgt sveitarfélag.

Á sama tíma hefur meirihlutinn, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin stýrt sveitarfélaginu í tólf ár og kjósendur þurfa einnig að meta þann árangur og þá þróun sem orðið hefur á þeim tíma. Ég trúi því að við getum gert betur.

Við eigum að byggja upp samfélag þar sem fjölskyldur finna fyrir öryggi, þar sem þjónustan er sterk, þar sem eldri borgarar fá þann stuðning og þá virðingu sem þeir eiga skilið enda hafa þeir lagt sitt af mörkum við að byggja upp samfélagið okkar. Ákvarðanir eiga að vera teknar með langtímahagsmuni íbúanna að leiðarljósi.

Við eigum líka að skapa stjórnsýslu þar sem samráð, fagmennska og ábyrg fjármál fara saman, þar sem fólk upplifir að það sé hlustað á það en ekki bara fyrir kosningar heldur allt kjörtímabilið.

Síðustu daga höfum við fundið sterkt traust frá fólki sem vill sjá breytingar verða að veruleika. Því trausti tökum við með auðmýkt og mikilli ábyrgð.

Núna gefst okkur tækifæri til að veita breytingum sterkt umboð og móta framtíð sveitarfélagsins með jákvæðni, ábyrgð og skýrri sýn.

Kæru bæjarbúar, framtíð sveitarfélagsins er í ykkar höndum.

Núna skiptir máli að velja fólk sem vinnur af heilindum, sýnir ábyrgð í verki og hefur skýra framtíðarsýn fyrir samfélagið okkar.

Ekki fólk sem lofar öllu öllum stundum, heldur fólk sem hefur kjark til að vinna markvisst að raunverulegum umbótum og betra samfélagi fyrir okkur öll.

Ég trúi því að saman getum við skapað framtíð sem við verðum stolt af.

Með kærleikskveðju.

Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi.

Skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar