Aðsent

Klikkaða líf!
Mánudagur 20. september 2021 kl. 07:55

Klikkaða líf!

Staða þín getur orðið „klikkuð“ ef þú lendir í því að veikjast alvarlega á geði.

Eftir að ég hóf að starfa með geðfötluðum hefur mér orðið æ ljósara hversu skelfilegir geðsjúkdómar geta verið og hve heilbrigðiskerfi okkar bregst illilega alvarlega geðsjúkum einstaklingum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Af tillitssemi við skjólstæðinga mína og  vegna persónuverndar fer ég að sjálfsögðu ekki út í persónuleg málefni en get þó sagt það að það kjör þeirra og aðbúnaður eru meðal annars ástæða þess að ég ákvað að bjóða mig fram fyrir Flokk fólksins.

Geðfatlaðir eru oftast einangraðir frá samfélaginu og sjá jafnvel sjaldan ættingja og vini sem hafa dregið sig í hlé, andlega búnir á því eftir áralanga erfiðleika  varðandi samskipti við þessa ástvini sína.

Hvergi öruggt athvarf

Sé fólk alvarlega geðveikt er heilbrigðiskerfið að mörgu leyti úrræðalaust og þá skoppar viðkomandi eins og jójó á milli búsetu sinnar og bráðageðdeildar. Sorglegt en því miður satt!

Alvarlega geðfatlaðir virðast ekki eiga sinn rétt til fastrar og öruggrar búsetu þar sem fagfólk heldur utan um þá þegar sjúkdómurinn herjar á og tekur reglulega öll völd. Þetta fólk mætir afgangi varðandi þau sjálfsögðu mannréttindi að eiga sér  öruggt skjól.

Ég veit dæmi þess að geðfatlaðir búi þar sem ekki er nein leið að þjónusta þá með þeim sóma sem þeim ber sem þjóðfélagsþegnar í þessu landi.

Þjóðfélagsþegnar sem völdu sér ekki þetta hlutskipti í lífinu! 

Húsnæði og aðbúnaður bíður ekki upp á það að sinna grunnþörfum þeirra svo að vel sé, þótt starfsfólk geri allt sem í valdi þess stendur til að láta þessum einstaklingum líða eins vel og kostur er.

Þetta fólk á ekki sinn fasta samastað. Þessir einstaklingar eiga sér ekki öruggt athvarf þar sem ástæðulaust er að óttast að lögregla og sjúkrabíll komi og færi þá nauðuga á bráðageðdeild. Þar bíður þeirra innilokun um óákveðinn tíma eða þar til sjúkdómurinn linar heljartökin í bili og viðkomandi einstaklingur  er ekki lengur hættulegur sjálfum þér og öðrum.

Vítahringur sem þarf að rjúfa

Geðsjúkdómar er oftast langvinnir og geta verið bæði illvígir og miskunnalausir. Rétt eins og stundarglas sem er reglulega snúið og þá hefst aftur og aftur svipuð atburðarás. Viðkomandi einstaklingur hleður upp spennu og ranghugmyndum sem svo að lokum taka öll völd. Þá mætir lögregla og sjúkrabíll til að fjarlægja hann út úr aðstæðum og svo er brunað á bráðageðdeildina. Enginn kýs sér að verða geðfatlaður en lífið er ófyrirsjáanlegt og hvert og eitt okkar getur misst geðheilsu án þess að fá nokkru um það ráðið.

Alvarlega geðfatlaðir búa við öryggisleysi sem gerir sjúkdóm þeirra enn ill viðráðanlegri. Það er dýrara fyrir alla að kalla margoft á ári út sjúkrabíl og lögreglu ásamt ótímabundinni innilokun á bráðageðdeild. Þar að auki erum við að brjóta alvarlega á þessu fólki með þessum aðgerðum.

Ég myndi vilja sjá hlýlegt heimili fyrir þetta fólk, þar sem fagfólk er alltaf til staðar og mætir þörfum íbúa eftir því hvar þeir eru staddir í ferli geðsjúkdóms síns. Þarna þarf að vera sólahrings þjónusta og öll hjálpartæki sem þarf til daglegrar umönnunar. Iðju- og sjúkra þjálfarar mæti  reglulega inn á heimilin. Félagsleg afþreying og líkamsrækt sé í boði heima,  fyrir þau sem það kjósa. Með þessu rjúfum við vítahring.

Þetta er fólk eins og þú og ég! Fólk  sem á tilkall  til sjálfsagðra mannréttinda eins og við hin sem teljumst falla í normið. Ekki satt?

Kjósum Flokk fólksins, fyrir fólkið í landinu. Allt  fólk í landinu!

Kveðja

Elín Fanndal, frambjóðandi í þriðja sæti á lista Flokks fólksins í Suðurlandskjördæmi