Aðsent

Frostaveturinn mikli
Sunnudagur 30. ágúst 2020 kl. 07:33

Frostaveturinn mikli

Þegar ég er spurður að því hvar ég eigi rætur þá svara ég ávallt með stolti að þær liggi til Suðurnesja, enda hef ég alltaf verið hreykinn af því að geta sagt að ég sé Suðurnesjamaður. Hér suður með sjó hefur mér liðið vel og viljað skapa tækifæri til framtíðar þar sem Suðurnesin hafa upp á svo margt að bjóða. Við íbúar Suðurnesja erum almennt bjartsýnir að eðlisfari, enda höfum við tekist á við ýmsar áskoranir í atvinnumálum síðustu árin og alltaf staðið uppréttir eftir þær raunir.

En nú slær við nýjan tón. Covid-19 hefur leikið okkur grátt og benda allar spár í þá átt að veturinn framundan verði mjög þungur. -Atvinnuleysi á Suðurnesjum er nú í hæstu hæðum og ef fram heldur sem horfir stefnir í að atvinnuleysi hér verði um og yfir 25% er líða tekur á haustið. Þó svo að atvinnuleysi hafi vissulega leikið okkur hér á Suðurnesjum grátt í gegnum tíðina, þá eru þetta tölur af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð áður. Staðan er því vissulega svört en vonandi aðeins til skamms tíma. Því miður er ekki hægt að leggja mat á það hvenær bjartari tíma er að vænta en það fer eftir ýmsu og þar spilar mest hvernig alþjóðasamfélaginu mun ganga að hefta útbreiðslu veirunnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Að missa atvinnu er hverjum einstaklingi mjög þungbært og þær afleiðingar sem fylgja atvinnumissi snerta margar hliðar daglegs lífs. Fjárhagur fer úr skorðum, rútína daglegs lífs riðlast og í mörgum tilvikum minnka félagsleg samskipti, sem allt hefur neikvæði áhrif á einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Sú tekjuskerðing sem fylgir atvinnuleysi hefur einnig áhrif á tómstundaiðkun barna til langs tíma þar sem hún kostar fjármuni og þegar fram líður magnast þessi vandi. Nýlegt dæmi frá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ sýnir okkur að fjölskyldur í Reykjanesbæ eru nú þegar komnar í mikinn fjárhagsvanda. Samkvæmt Fjölskylduhjálp þáðu í heildina um 5.000 einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu (þ.m.t á Suðurnesjum) mataraðstoð á tímabilinu 15. apríl til 1. júlí og af þeim voru 1.554 á Suðurnesjum eða rúmlega 30%. Þessar tölur eru sláandi og eiga að öllum líkindum aðeins eftir að hækka er líður á veturinn.

Áskorunin framundan er því stór og þurfa ráðamenn að leggjast á árarnar með okkur og aðstoða samfélagið hér við að komast í gegnum þá erfiðleika sem það stendur nú frammi fyrir. Hér á Suðurnesjum þarf að skapa störf og styrkja innviði ásamt því að leggja grunn að fjölbreyttara atvinnulífi. Því þurfa stjórnvöld nú að koma til móts við þennan hóp og aðstoða okkur við að komast í gegnum þann frostavetur sem framundan er. 

Arnar Páll Guðmundsson,
formaður Viðreisnar
í Reykjanesbæ.