Karlakórinn
Karlakórinn

Viðskipti

Skólar fjölga heilsueflandi leikskólum
Tölvuteikning af leikskólanum í Suðurnesjabæ en hann er í byggingu.
Laugardagur 8. júlí 2023 kl. 06:18

Skólar fjölga heilsueflandi leikskólum

Opna sex deilda heilsuleikskóla í Suðurnesjabæ í mars 2024

„Við erum að bæta við einum sex deilda heilsuleikskóla í Suður-nesjabæ. Áætlað er að hann opni í mars á næsta ári. Þetta verkefni er mikil áskorun en mjög spennandi,“ segir Kristín Margrét, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Skóla ehf.

Fyrir rekur Skólar ehf. fimm heilsuleikskóla á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum en fyrirtækið var stofnað árið 2000 af feðgunum Guðmundi Péturssyni og Pétri Guðmundssyni utan um rekstur leikskóla undir einkunnarorðunum „heilbrigð sál í hraustum líkama“.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Fyrsti heilsuleikskólinn sem við opnuðum var Krókur í Grindavík en hann hóf starfsemi í febrúar 2001. Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi opnaði svo árið 2006.

Heilsu-„ungbarnaleikskólinn“ Ársól í Reykjavík og Heilsuleikskólinn Skógarás á Ásbrú opnuðu 2008 og einnig Hamravellir en hann færðist yfir til Hafnafjarðarbæjar árið 2020 samkvæmt samkomulagi aðila. Nýjasti heilsuleikskólinn er Urriðaból í Garðabæ sem opnaði í september 2022 og til stendur að opna annan þar í byrjun árs 2024,“ útskýrir Kristín Margrét.

 Kristín Margrét Baranowski, framkvæmdastjóri Skóla ehf.
Markmið heilsustefnunnar er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun í leik og að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar.

Gera heilbrigða lífshætti að lífsstíl til framtíðar

Allir skólarnir starfa eftir sérstakri heilsustefnu. Markmið heilsustefnunnar er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun í leik og að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Að sögn Kristínar má rekja upphaf stefnunnar til þróunar- og samstarfsverkefnisins European Network of Health Promoting Schools sem hófst sem samstarfsverkefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, Evrópuráðsins og Evrópusambandsins árið 1992. Frumkvöðull þessarar stefnu í leikskólastarfi á Íslandi var Unnur Stefánsdóttir en hún starfaði sem framkvæmdastjóri faglega hluta Skóla ehf. í mörg ár.

Leiðandi í heilsueflandi leikskólastarfi

Kristín Margrét segir starf Skóla ehf. í stöðugri þróun og áhersla sé lögð á faglegt starf.

„Við ætlum okkur að verða leiðandi í þekkingu og aðferðafræði heilsueflandi leikskólastarfs á Íslandi, með heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins að leiðarljósi. Til að ná þessum markmiðum settum við meðal annars viðverustefnu á sem gengur út á að starfsmenn sem eru ekki frá vinnu í sex vikur fá hálfan frídag í samráði við leikskólastjóra. Við fengum markþjálfa til að hitta alla starfsmenn fyrir nokkrum árum og erum rétt að ljúka endurmenntunaráætlun sem hefst 7. desember á þessu ári. Við störfum eftir jafnréttisstefnu og erum búin að ljúka jafnlaunavottun. Þá unnum við sérstaka áætlun með Heilsuvernd með heilsu starfsmanna í fyrirrúmi og erum með samgöngustyrk, heilsueflingarstyrki, hópeflisstyrki og námsstyrki. Fyrir nokkrum árum gerðum við átta vikna matseðil af næringarríkum mat sem allir okkar skólar nota í dag. Þetta var unnið með næringarfræðingi og í samráði við matráða okkar. Sérfræðingar í kennslu og námskeiðum mun hefja þjálfun næsta vetur fyrir alla nýja starfsmenn. Auk þess höfum við gert samning um samstarf um fagháskólanám í leikskólafræðum milli Háskóla íslands og Háskólann á Akureyri. Við teljum þetta muni styrkja starfsmenn okkar og þar með einnig faglega reksturinn á hverjum stað,“ segir Kristín Margrét.