Viðskipti

Ætla að breyta iðnaðinum með sjávarfangi og lækningajurtum
Guðrún og Kristberg ásamt starfsfólki TARAMAR. Mynd: Ernir Eyjólfsson, Fréttablaðið
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
mánudaginn 18. júlí 2022 kl. 07:00

Ætla að breyta iðnaðinum með sjávarfangi og lækningajurtum

Líftæknifyrirtækið TARAMAR sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á lífrænum húðvörum og er með nýsköpunarvinnu í Sandgerði. Þá er fyrirtækið með hlutafjárútboð í gangi til að efla þá starfsemi. Húðvörur TARAMAR eiga sér engar líkar en þær byggja á lífvirkum efnum úr sjávarfangi og lækningajurtum og hafa þann eiginleika að draga úr sjáanlegum áhrifum öldrunar.

Guðrún Marteinsdóttir, prófessor í fiskifræði, og Kristberg Kristbergsson, prófessor í matvælafræði, eru hjón sem jafnframt hafa unnið að rannsóknum tengdum fjölbreytileika íslenskrar náttúru og lífvirkum efnum í matvælum sem síðar varð undirstaðan af TARAMAR ehf. Þau fóru í upphafi af stað með það hugarfar að skapa eiturefnalausa húðvöru til eigin nota en nú eru vörurnar til sölu á alþjóðamarkaði og segir Guðrún að það hafi gengið vel. „Við eigum hundruð umsagna sem segja frá hve fólk er ánægt og að það hafi ekki getað flutt sig til baka í vörur sem það notaði áður. Það passar við það sem við vitum um vörurnar en við höfum lagt höfuðáherslu á að viðhalda náttúrulegri tíðni íslensku innihaldsefnanna og bæta engum eitrandi eða hormónaruglandi efnum í formúlurnar. Það er það sem fólk finnur og finnur hvað húðin breytist og verður góð með þessum hreinu, náttúrulega gefandi efnum,“ segir Guðrún. 

Nýsköpun í Sandgerði

Þangið sem TARAMAR vinnur með kemur frá Símoni í Bláskel úr Breiðafirði og jurtirnar frá Móðir jörð, Hæðarenda í Grímsnesi og Hraundísi í Borgarfirði en flest af þessum svæðum hafa lífræna vottun. Þá er fyrirtækið einnig með mikla nýsköpun í Sandgerði – en hvers vegna þar?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Í starfi mínu á Hafrannsóknastofnun þá sendi ég oft verkefni inn á þróunarsetrið í Sandgerði fyrir tilstilli Jörundar Svavarssonar, prófessors. Þessi verkefni voru undantekningarlaust mjög vel unnin. Þegar ég stóð svo frammi fyrir því að finna fólk til að vinna í TARAMAR þá vissi ég af þessum konum sem höfðu unnið á þekkingarsetrinu og vissi að þær væru kjörnar í vinnuna. Í framhaldi af því þá átti ég fund með Sigrúnu Árnadóttur, bæjarstjóra, hún útvegaði okkur húsnæði og hjálpaði okkur á svo margan hátt. Það má næstum segja að hún sé guðmóðir TARAMAR,“ segir Guðrún og bætir við: „Í framhaldi af þessu kom Eignarhaldsfélag Suðurnesja inn með fyrstu kaup á hlutum og margir þar hafa hjálpað okkur mikið og nefni ég t.d. Friðjón Einarsson sem, á sama hátt og Sigrún, tók okkur upp á sína arma og mætti því segja að hann sé guðfaðir TARAMAR. Síðan þegar Magnús tók við sem bæjarstjóri héldum við áfram mjög góðum tengslum og hann og bæjarstjórnin hafa hjálpað okkur óendanlega mikið.“ Guðrún segir að hráefni frá Suðurnesjum séu í kortunum hjá TARAMAR en þau verða notuð í nýja vörulínu þeirra sem ber nafnið ICEBLU og er unnin í samstarfi við VAXA life á Hellisheiði.

Ætla sér stóra hluti á erlendum markaði

TARMAR er að safna fyrir markaðskostnaði til að koma sér á erlendan markað og er með hlutafjárútboð vegna þessa. „Við ætlum okkur mjög stóra hluti á erlenda markaðnum enda erum við með vörur sem finnast ekki á þessum markaðssvæðum og miðað við mótttökurnar hér heima þá eru góðar líkur á að okkur verði tekið mjög vel erlendis. Í raun er eitt af markmiðum okkar að breyta þessum iðnaði sem í dag einkennist af mikilli notkun á ódýrum, manngerðum efnum sem eru slæm fyrir okkur og sum hreinlega hættuleg,“ segir Guðrún. Til þess að láta það verða að veruleika ætlar fyrirtækið að ráðast í markaðsherferðir til að ná til erlendu viðskiptavinanna. „Þetta kostar mikla peninga og nú hvetjum við Reykjaness- og Suðurnesjabúa til að koma í þetta verkefni með okkur og eignast um leið hlut í félaginu okkar en vonir standa til að það muni vaxa hratt í verðmæti á næstu þremur árum. Við stefnum á að TARAMAR vaxi og dafni og veiti stigvaxandi fjölda vinnu á þessu svæði,“ segir Guðrún og bætir við: „Fyrir þá sem vilja skoða þetta þá bendum við á heimasíðuna www.taramar.is/hluthafar. Einnig má bæta við að hluthafar hafa sérstök vildarkjör í netverslun TARAMAR, eða 40–80% afslátt.“