Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Viðskipti

„Hefðum séð eftir því að láta þetta ógert“
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 10. október 2026 kl. 15:33

„Hefðum séð eftir því að láta þetta ógert“

Þau prófuðu að hætta að vinna en fundu fljótt að það átti ekki við þau. Nú reka hjónin Kristinn Skúlason og Drífa Dan Public Deli á Ásbrú, þar sem þau hafa í rúm tvö ár tekið á móti heimafólki og ferðamönnum. Hádegismaturinn hefur orðið fastur liður hjá mörgum og heimsóknir gamalla kunningja orðið að endurfundum.

„Mér finnst eins og ég sé að koma heim þegar ég kem hérna í hádeginu til ykkar.“ Þessi orð viðskiptavinar, sem Drífa Dan rifjar upp úr spjalli fyrr um daginn, segja kannski meira um Public Deli á Ásbrú en upptalning á réttum og hráefnum. Þau Kristinn Skúlason hafa lagt áherslu á að fólk fái góðan mat en líka að því líði vel, að það þekki andlitin sem taka á móti því og langi að koma aftur.

Fyrir Kristin, eða Kidda Skúla eins og margir Suðurnesjamenn þekkja hann, hefur staðurinn líka orðið vettvangur endurfunda.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Það koma margir að heimsækja mig og til að spjalla. Þetta er búinn að vera voða skemmtilegur tími,“ segir hann.

Drífa hefur sína lýsingu á því: „Þetta er svona eins og endurfundir alla daga fyrir hann.“

Að hitta fólk, heyra sögur þess og vera hluti af samfélaginu í Reykjanesbæ er stór hluti af ánægjunni sem þau hafa af rekstrinum. Þau vilja að staðurinn sé líka vettvangur samveru, þar sem fjölskyldur og vinir geti sest niður yfir góðum mat, fagnað áföngum eða einfaldlega notið hversdagsins saman.

Litla Skúlabúðin

Þegar Kristinn og Drífa undirbjuggu opnun Public Deli á sínum tíma lýsti hann hugmyndinni sem nútímalegri hverfisverslun. Veitingastaður og verslun undir sama þaki áttu að auðvelda fólki hversdaginn; hægt yrði að setjast niður og borða eða grípa með sér mat og nauðsynjar.

Hugmyndin átti sér þó eldri rætur í lífi Kristins. Hann ólst upp í Keflavík og steig sín fyrstu skref í verslunarrekstri í Skúlabúð, verslun foreldra sinna við Lyngholt.

„Ég byrjaði snemma að hjálpa til í búðinni hjá pabba og mömmu,“ segir hann.

Reyndar stóð til að starfsferillinn yrði allt annar. Ungur ætlaði Kristinn að verða rakari og var á leið á samning á stofu í Reykjavík þegar hann kynntist konunni sem síðar varð eiginkona hans. Leiðin lá þess í stað inn í matvöruverslunina, fyrst í Víði, síðan Nóatún og loks Krónuna, þar sem hann stýrði rekstri og uppbyggingu um árabil.

Nú er hringurinn að einhverju leyti lokaður. Eftir áratugi á höfuðborgarsvæðinu er hann aftur kominn með verslun í sínum gamla heimabæ.

„Ég kalla búðina alltaf litlu Skúlabúðina,“ segir hann.

Of ung til að hætta

Eftir tæp átján ár sem rekstrarstjóri Krónunnar tók Kristinn að sér að vinna að uppsetningu flugeldhúss í gamla messanum á Ásbrú. Þar í nágrenninu sá hann húsnæðið sem áður hafði hýst Langbest og stóð þá autt.

Þau hjón höfðu lengi gengið með hugmynd að eigin stað. Þau höfðu meðal annars skoðað möguleika í Kópavogi, en þar hefði þurft að byggja starfsemina upp frá grunni. Á Ásbrú var tækifærið annað.

Fyrirmyndina höfðu þau séð í Svíþjóð: verslun og veitingar sem löguðu sig að stærð og þörfum hverfisins.

„Okkur langaði kannski að taka síðasta dansinn í lífinu. Við settum okkur fimm ára markmið og settum þetta upp hérna,“ segir Kristinn.

Að setjast í helgan stein hafði nefnilega verið prófað. Tilraunin gekk ekki sérstaklega vel.

„Okkur fannst við bara vera of ung til að hætta að vinna,“ segir Drífa. „Við prófuðum það en það hentaði okkur alls ekki. Við erum svo orkumikil.“

Golfið eitt og sér dugði ekki til, þótt þau hefðu bæði gaman af því. Eftir að reksturinn hófst hefur raunar gefist heldur minni tími til að sveifla kylfunum.

Börnin voru ekki alveg sannfærð í upphafi.

„Þau héldu að við hefðum hreinlega dottið á hausinn,“ segir Drífa og hlær. „En í dag sjá þau hvað við höfum gaman af þessu.“

Hverfið hafði sínar eigin hugmyndir

Reynsla Kristins úr matvöruversluninni var mikil, en Ásbrú átti eftir að koma honum á óvart.

Þau höfðu séð fyrir sér meiri eftirspurn frá fjölskyldum. Í upphafi urðu þau hins vegar vör við stóran hóp fólks sem vann á flugvellinum, hjá bílaleigum og víðar á svæðinu. Margir sóttu einfaldar lausnir í verslunina en nýttu veitingastaðinn síður en þau höfðu búist við.

Þá þurfti að hlusta.

„Við byrjuðum með meiri ferskvöru, ávexti og grænmeti, en það var ekki að virka eins og við höfðum hugsað okkur. Við einfölduðum þetta bara og fórum í það sem hverfið var að biðja um,“ segir Kristinn.

Mjólk, brauð, tannbursti, tannkrem og aðrar hversdagslegar nauðsynjar fengu sitt pláss. Gestir af hótelinu í næsta húsi og gistiheimilum í nágrenninu hafa líka nýtt sér verslunina.

Sama þróun varð á veitingastaðnum. Heimilismatur í hádeginu var ekki hluti af upphaflegu áætluninni en viðskiptavinirnir hjálpuðu þeim að finna þá leið.

„Þeir hafa líka hjálpað okkur að aðlagast umhverfinu,“ segir Kristinn.

Nú koma iðnaðarmenn, verktakar og starfsfólk fyrirtækja á svæðinu reglulega í hádegismat. Drífa nefnir einnig lögreglu, slökkvilið, Landhelgisgæslu og hermenn meðal gesta.

„Þetta er öll flóran. Við eigum mikið af góðum og traustum viðskiptavinum sem halda tryggð við okkur,“ segir hún.

Samloka með ferðasögu

Í hádeginu er boðið upp á heimilismat ásamt opnum matseðli. Þau leggja áherslu á að hafa val, meðal annars fyrir þá sem vilja fisk og þá sem kjósa kjötrétt.

Súpan er gerð frá grunni, brauð og kökur bökuð og sósurnar lagaðar á staðnum. Súrdeigspítsurnar hafa verið vinsælar, en samlokur úr pítsadeigi hafa líka eignast sinn aðdáendahóp.

Ein þeirra hefur meira að segja farið í töluvert ferðalag.

Drífa segir frá gestum sem keyptu samloku til að taka með í flug til Alicante. Þau borðuðu hins vegar á staðnum áður en lagt var af stað og samlokan beið því fram á kvöld.

„Hún var borðuð í kvöldmat með góðu rauðvínsglasi á Alicante. Ég fékk meira að segja senda mynd,“ segir Drífa, augljóslega ánægð með þessa óvæntu ferðasögu.

Á matseðlinum eru meðal annars salöt, vefjur, steikur, grillaður lax og rif með viskígljáa sem þau útbúa sjálf. Nú stendur til að endurnýja hluta matseðilsins.

„Við erum ekki að bylta öllu. Við ætlum aðeins að koma með nýjungar fyrir viðskiptavinina okkar,“ segir Kristinn.

Ferðahópar eru einnig orðnir hluti af starfseminni. Gestir hafa komið frá Ítalíu, Kína, Bandaríkjunum og Indlandi, auk íslenskra hópa á ferð um Suðurnes. Drífa segir ánægjulegt þegar ein heimsókn leiði af sér þá næstu og hópar bendi öðrum á staðinn.

Þótt erindin séu ólík leggja þau sömu áherslu á hlýjar móttökur og notalegt umhverfi, hvort sem gestir eru á ferðalagi, að fagna áfanga eða koma við í hádeginu. Í kynningu staðarins draga þau þá hugsun saman með orðunum: „Public Deli, þar sem gott fólk, góður matur og góðar stundir mætast.“

Hann á morgnana, hún á kvöldin

Þau hjón eru sjálf á staðnum alla daga en skipta með sér tímanum. Kristinn er morgunmaðurinn og mætir fyrstur. Hann heldur yfirleitt heim á milli fjögur og fimm og Drífa sinnir síðari hluta dagsins.

Þau reyna að eiga frí saman á sunnudögum. Að öðru leyti snýst þetta mikið um staðinn, starfsfólkið og gestina.

Drífa segir fólk stundum velta fyrir sér hvernig það fari að því að vinna saman dag eftir dag.

„Við erum búin að vinna saman svo lengi að við þekkjum hvort annað og leyfum hvort öðru að njóta sín. Hann er í sínu og ég í mínu.“

Hún sinnir meðal annars skrifstofuverkefnum auk þess að vera frammi meðal gesta. Þau segja nærveru eigendanna skipta máli en eru jafnframt fljót að nefna starfsfólkið.

„Við erum með frábært starfsfólk,“ segir Drífa. „Vaktstjórarnir okkar hafa verið með okkur frá byrjun.“

„Eigum við?“

Þótt þau hafi upphaflega sett sér fimm ára markmið hafa komið fyrirspurnir um hvort þau vilji opna sambærilegan stað annars staðar.

„Við höfum alveg litið hvort á annað og sagt: Eigum við?“ segir Drífa.

Kristinn viðurkennir að hugmyndin freisti.

„Ef maður væri fimmtán árum yngri hefði maður ekki hikað.“

Þegar Drífu var nýlega bent á laust húsnæði niðri í Keflavík var svarið þó skýrt:

„Nei, við erum hérna uppi á Ásbrú.“

Þau sjá breytingar í hverfinu, hús fá nýtt hlutverk og fleiri íbúar eru farnir að nýta sér staðinn. Drífa hafði frá upphafi lagt áherslu á að húsið yrði tekið í gegn að utan og gluggarnir bættir svo meiri birta kæmist inn. Nú horfa þau ánægð á umhverfið taka breytingum.

En þegar þau eru spurð hvort þau sjái eftir því að hafa ráðist í reksturinn þarf ekki langan umhugsunartíma.

„Ég held að við hefðum séð eftir því að hafa ekki gert þetta,“ segir Kristinn. „Þetta var draumur.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn