Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Pistlar

Aflafréttir: Samanburður vertíða 50 ár aftur í tímann
Föstudagur 12. júní 2020 kl. 07:54

Aflafréttir: Samanburður vertíða 50 ár aftur í tímann

Júnímánuður kominn af stað og eins og greint var frá í síðasta pistli, þar sem talað var um hversu margt breytist í júni, og skulum við aðeins kíkja á það sem og líta á nýjustu afurð mína í útgáfumálum.

Þessa fáu daga í júní hefur smá slatta verið landað í Grindavík og Sandgerði en það sem vekur athygli er að engum afla hefur verið landað í Keflavík/Njarðvík.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í Grindavík hefur 573 tonnum verið landað og mest af því kemur frá stóru línubátunum. Páll Jónsson GK með 82 tonn, Sighvatur GK 79 tonn, Kristín GK 76 tonn, Fjölnir GK 73 tonn og síðan komu Áskell ÞH og Vörður ÞH báðir með sitt hvor 83 tonnin í land.

Eins og sést þegar búið að er að leggja þetta saman að þá eru þetta 542 tonn og því aðeins um 30 tonn sem hafa komið aukalega frá smábátunum.

Hrappur GK er með 4,5 tonn, Sæfari GK 4,1 tonn, Þórdís GK 3,3 tonn og Jón Pétur RE 3,8 tonn allir á færum og allir með fjóra róðra.

Í Sandgerði hafa aðeins fleiri bátar landað afla og heildarlöndun er komin í 144 tonn í júní. Mest af því á Pálína Þórunn GK sem kom með 68 tonn í einni löndun. Aðalbjörg RE, sem er á dragnót, er með 22 tonn í fjórum róðrum.

Af færabátunum er Fagravík GK með 3,5 tonn í þremur, Gréta GK 2,9 tonn í fjórum, Guðrún GK 2,6 tonn í þremur og Jói á Seli GK 2,4 tonn í þremur.

Allir minni línubátarnir eru farnir í burtu frá Suðurnesjum, flestir fóru austur og nokkrir norður, en einn línubátur er eftir,það er Steinunn HF sem var með 5,1 tonn í tveimur róðrum í Sandgerði.

Vertíðirnar 1970 og 2020

Förum aðeins í aðra sálma því alveg síðan árið 2005 hef ég skrifað um vetrarvertíðirnar, sem eru ár hvert frá 1. janúar til 11. maí. Gerði það fyrst í Fiskifréttir fram til ársins 2017 og bar þá alltaf saman vertíðir 50 ár aftur í tímann, t.d fyrsta var 2005 og 1955 og svo koll af kolli.

Síðan árið 2018 hef ég gefið út þessi vertíðarrit sjálfur. Þetta eru engir risadoðrantar, hvert rit er um um 36 blaðsíður að stærð. Nýjasta ritið um vertíðina 2020 og vertíðina árið 1970 var að koma út. Í því er fjallað um vertíðirnar bæði árin, sem og birtur listi yfir alla þá báta sem náðu yfir 400 tonn árið 2020, en þeir voru um 90, og líka birtur listi yfir alla þá báta sem náðu yfir 400 tonn árið 1970.

Bátarnir árið 1970 voru ótrúlega margir eða um 270 sem náðu yfir 400 tonn á þeirri vertíð og mjög margir bátar frá Suðurnesjum eru þar á blaði, þá lönduðu þeir bátar í Grindavík, Sandgerði, Keflavík og Vogum.

Í þessu riti er líka smá innsýn inn í loðnubátanna árið 1970, togarana bæði árin og smábátana árið 2020 en þar er miðað við 200 tonn.

Ef þið hafið áhuga þá getið þið pantað ritið í síma 6635575 (Gísli), 7743616 (Hrefna) eða á netfangið [email protected]. Ritið kostar 3.000 krónur.

Það má geta þess að nýtt Íslandsmet var sett á vertíðinni 2020 þegar netabáturinn Bárður SH veiddi yfir 2000 tonn í net á vertíðinni, gamla metið var frá árið 1989 og aftur til ársins 1970 þá var Geirfugl GK sem setti Íslandsmet með mestum netaafla á vertíð þegar að hann landaði þá yfir 1700 tonn á vertíðinni. Sem sé báðar vertíðir ansi merkilegar.

Gísli Reynisson
aflafrettir.is