Kaffi Duus Jólahlaðborð
Kaffi Duus Jólahlaðborð

Pistlar

Aflafréttamaður á slóðum Grímsa GK við Jökulsárlón
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
mánudaginn 23. nóvember 2026 kl. 09:52

Aflafréttamaður á slóðum Grímsa GK við Jökulsárlón

Ansi oft meðan ég skrifa þessa pistla þá er ég staddur víðs vegar um landið eða þá jafnvel erlendis.  Núna er ég staddur á hóteli við Jökulsárlón og títtnefndur netabátur, Grímsi GK, var um tíma við veiðar hérna á svæðinu frá Ingólfshöfða og að Jökulsárlóni. 

Dragnótabáturinn Sigurfari GK fór áleiðis hingað, en hann fór alla leið austur að Ingólfshöfða á veiðum á dragnót og kom til Sandgerðis með nokkuð góðan afla því að landað var úr bátnum 44 tonnum og af þeim afla var mest af ýsu eða rúm 40 tonn. 

Núna fer að líða að því að línubátarnir sem hafa verið á veiðum fyrir austan og norðan land fari að koma suður, og einn bátur er kominn núna suður, en það er Fjölnir GK sem reyndar kom við á Hornafirði, ekki langt frá þar sem ég er núna, og landaði þar 18 tonnum í tveimur róðrum.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Fyrir sunnan þá eru tveir minni línubátar, Margrét GK og Dúddi Gísla GK. Hefur Dúddi Gísla GK landað 28 tonnum í fimm róðrum og mest 6 tonnum og Margrét GK hefur landað 37 tonnum í sjö róðrum og mest 7,7 tonnum.

Það er byrjað að skána töluvert veiðin hjá netabátunum sem eru í Faxaflóanum og Erling KE er kominn á veiðar og hann byrjar nokkuð vel, 50 tonn í 5 róðrum og mest 22 tonn í einni löndun. Af öðrum bátum er Sunna Líf GK með 17,7 tonn í 8 og mest 5,2 tonn. Elley GK með 11,4 tonn í 9. Emma Rós KE með 11 tonn í 7 og Addi afi GK með 11,7 tonn í 7. Margrét með 8 tonn í 7 róðrum.

Dragnótaveiðar í Faxaflóanum ganga áfram vel og er Aðalbjörg RE með 91 tonn í 9 róðrum. Stapafell SH 60 tonn í 5, en báturinn landar í Njarðvík. Benni Sæm GK 44 tonn í 6 og Siggi Bjarna GK 55 tonn í 7. 

Stóru línubátarnir frá Vísi hafa verið að landa til skiptis á Djúpavogi og í Grindavík, og er Sighvatur GK kominn með 268 tonn í 2 löndunum og mest 164 tonn í einni löndun, og Páll Jónsson GK með 365 tonn í 3 og mest 136 tonn. Þessi stóra löndun hjá Sighvati GK var að langmestu leyti þorskur, en af þessum 164 tonna afla var 161 tonn af þorski.

Hjá bátunum sem eru fyrir norðan hefur verið frekar erfitt tíðarfarið, en þó hefur Guðbjörg GK komist í 10 róðra og með 56 tonna afla og mest 8,3 tonn, landar á Skagaströnd. Óli á Stað GK með 47 tonn í 5 róðrum og mest 12,6 tonn. Hópsnes GK 37 tonn í 8 og Geirfugl GK 34 tonn í 8, allir á Skagaströnd. 

Það fór betur en á horfðist í óveðrinu sem var núna á föstudagsnóttina, þegar einn fingur við flotbryggju í Sandgerði brotnaði og við þennan fingur lá báturinn Trilla GK. Fingurinn brotnaði það illa að hann byrjaði að berjast utan í skrokkinn á Trillu GK sem endaði með því að gat kom á skrokkinn og sjór tók að leka inn í lúkarinn á bátnum. 

Jónína Hansen ásamt fjölskyldu sinni á bátinn og hún hafði það sem reglu að fara og líta eftir bátnum og á laugardagsmorgun tók hún eftir því að báturinn var frekar skítinn við bryggju og mjög framsiginn. Kom þá í ljós að lúkarinn var á kafi í sjó og sjór kominn inn í brúnna á bátnum.

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði og menn frá Köfunarþjónustu Sigurðar, ásamt slökkviliðinu, komu og dældu úr bátnum og Jóhann Haukur, skipstjóri og eigandi af Hawkernum GK, dró svo Trillu GK yfir á norðurgarðinn í Sandgerði þar sem báturinn var hífður á land.

Töluvert mikið tjón er á Trillu GK og til að mynda er allur tölvubúnaður ónýtur í bátnum. Núna er þetta í höndum tryggingarfélaga en Sandgerðishöfn er líklega skaðabótaskyld því þetta tjón gerist út af því að fingurinn brotnar við flotbryggjuna. 

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100