Mannlíf

Svakalegt Suðurnesja Svakasýn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 3. mars 2023 kl. 06:50

Svakalegt Suðurnesja Svakasýn

Leikfélag Keflavíkur frumsýndi revíuna Suðurnesja Svakasýn í Frumleikhúsinu síðasta föstudag. Þrjátíu og fjögur ár eru liðin frá því félagið setti fyrst revíu á fjalirnar en sú fyrsta var samin af Ómari Jóhannssyni og fékk heitið „Við kynntumst í Keflavík“. Hún fékk frábærar viðtökur eins og reyndar allar revíur félagsins sem fylla núna tuginn. 

Það er áskorun að gera revíu. Hópur fólks í LK settist niður í vonda veðrinu í desember, fékk sér snakk og bjór og samdi eitt stykki. Suðurnesja Svakasýn er líkt og fyrri revíur nokkurs konar ára-mótaskaup Reykjanesbæjar. Ýmis málefni svæðisins eru að venju tekin fyrir og þá fá þekktir bæjarbúar líka aðeins á baukinn. „Við“ Hilmar Bragi hjá Víkurfréttum opnum kvöldið og síðan taka við skemmtileg atriði sem flestir Suðurnesjamenn kannast við, eins og mygla í húsnæði, rokkbókasafnið, karlar sem eiga konur sem versla í tískufatabúðinni Gallerí, Hollywood- Hafnargötustjarnan Jodie Foster, sjálfsafgreiðslan í matvörubúðum, snjómokstur og fleira eins og „barátta“ fólks við að komast að á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þá fá Blue bræður með sitt góðgerðarfest skemmtilegan skets sem og hótelstjórinn á KEF. Svo sleppur bæjarstjórn og bæjarstjórinn auðvitað ekki við grín og glens í revíu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Mörg atriðanna eru mjög fyndin. Í revíu sem fjallar um málefni svæðisins, mörg hver mjög „lókal“ er hægt að tala um magnaða innansveitarkróniku. Eins og þegar karlarnir sitja og ræða kjóla- og fatakaup eiginkvenna. Algerlega frábært atriði.  

Ansi margir leikarar félagsins eru komnir með góðan grunn og reynslu. Kjarni fólks sem kann til verka, fer vel með texta og svo eru margir þrusu góðir söngvarar í hópnum. Það gefur mörgum atriðunum meiri gæði að það sé sungið í þeim og það gerir leikfélagsfólkið mjög vel. Guðlaugur Ómar Guðmundsson fer til dæmis á kostum í einu af lokaatriðunum þegar hann svífur um sviðið með bæjarstjórafiðluna og eltir sviðsljósið. Fleiri dæmi væri hægt að nefna en verða ekki talin upp hér. Farið bara og sjáið! 

Leikfélag Keflavíkur er áhugafélag og því þarf að horfa og meta verkin miðað við það en það verður að segja því til verulegs hróss að áhugastimpillinn er mjög lítill eða nánast enginn. Hægt er að nefna dæmi um einfalda en skemmtilega sviðsmynd þar sem stafræn þróun er nýtt og síðast en ekki síst, hljóðið. Leikarar eru með hljóðgræjur á sér og þannig skilast það svo vel til áhorfenda. 

Leikstjórinn Eyvindur Karlsson (Ágústs Úlfssonar) náði mjög vel að binda saman þessa revíu og segir í leikskrá að hann sé orðinn mun nær málefnum Reykjanesbæjar eftir skyndinámskeið í þeim. 

Það er ekki af neinni góðmennsku eða innansveitar-meðvirkni að hægt er að gefa Leikfélagi Keflavíkur toppeinkunn fyrir þessa nýju revíu og enda þennan pistilinn á viðeigandi orðum sem undirritaður á eitthvað í: Komiði sæl og verið velkomin í Suðurnesja-Svakasýn. Það er skemmtilegur þáttur framundan!

Hér að neðan má sjá myndaseríu úr sýningunni og af frumsýningargestum. Einnig myndskeið úr sýningunni.

Suðurnesja-Svakasýn