Mannlíf

Mörkin er í sérstöku uppáhaldi
Fannar og Hrafnhildur kona hans og fjölskylda á Bolafjalli í sumar.
Sunnudagur 5. september 2021 kl. 08:39

Mörkin er í sérstöku uppáhaldi

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindvíkinga, hvíldi sig frá gosvakt og heimsótti Vestfirðina í sumar.

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindvíkinga hefur verið áberandi síðustu mánuði en hann stýrir „heitasta“ bæjarfélagi landsins sem er með eldgos í bakgarðinum. Þrátt fyrir annir gaf hann sér tíma til að taka frí  í sumar og fór á Vestfirðina og fleiri staði. Nú er hins vegar allt komið á fullt aftur hjá bæjarstjóranum sem svaraði nokkrum spurningum Víkur-frétta.

Hvernig varðir þú sumarfríinu?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við hjónin fórum á Vestfirðina í nokkurra daga ferð ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Fengum fyrirtaks veður og nutum tilverunnar á þessum stórbrotnu slóðum. Einnig heimsóttum við hjónakornin vinafólk á Snæfellsnesi og dvöldum þar í þrjá daga auk helgarferðar í Þórsmörk og styttri skreppitúra. Annars vorum við í sumarbústað okkar í Fljótshlíðinni og á heimaslóðum í Grindavík.

Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?

Við höfum ferðast talsvert mikið um landið árum saman og notið þess sem Ísland hefur upp á að bjóða. Það er magnað að upplifa hina fjölbreyttu og fögru náttúru sem og að skoða áhugaverða staði og fylgjast með mannlífinu í sveitum og bæjum. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikið vegirnir hafa batnað víða um land, einkum ef horft er til stöðunnar eins og hún var fyrir einum til tveimur áratugum.

Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands?

Ég held því fram að Þórsmörk sé fallegasti staður landsins og Mörkin er því í sérstöku uppáhaldi.

Fannar og Hrafnhildur með börnum sínum á gosstöðvunum.

Hver er tilfinningin fyrir haustinu og komandi vetri?

Mín von er sú að kórónuveiran gefi eftir í auknum mæli og við getum látið af þeim höftum og takmörkunum sem verið hafa. Að ástandið komist í eðlilegar skorður og fólkið í landinu lifi sínu venjubundna lífi og fyrirtækin geti dafnað á ný, ekki síst ferðaþjónustan.

Hver eru stærstu málin í þínu sveitarfélagi um þessar mundir?

Hafinn er undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár og því verkefni fylgir mikil vinna fyrir stjórnendur og forstöðumenn í bæjarfélaginu. Í Grindavík hafa verið miklar framkvæmdir á þessu ári og þeim síðustu og fyrirsjáanlegt að svo verði áfram. Verkefni tengd eldgosinu hafa einnig verið fyrirferðarmikil hjá ýmsum starfsmönnum bæjarins.

Ertu búinn að fara að gosinu í Fagradalsfjalli nýlega og hvernig meturðu stöðuna?

Ég fer öðru hvoru á gosstöðvarnar og fylgist reglulega með gangi mála á þeim tíðu fundum sem haldnir eru vegna eldgossins. Meðan eldvirknin og hraunrennslið heldur áfram í þeim reglubundna takti sem verið hefur er óþarfi að hafa miklar áhyggjur. Ef þetta ástand varir svo mánuðum eða árum skiptir mun hraunið flæða um mun víðáttumeira svæði en nú er. Viðvarandi rennsli niður í Nátthaga gæti þannig valdið því að Suðurstrandarvegurinn lokast. Almannavarnir, viðbragðsaðilar og vísindamenn vinna með líkön og áætlanir til skemmri og lengri tíma með það að leiðarljósi að geta brugðist við aðstæðum hverju sinni. 

Hvernig myndir þú skipuleggja góða dagsferð með gesti á Suðurnesjum?

Suðurnesin eru ríkulega búin náttúruperlum og áhugaverðum stöðum og því dugar dagsferð engan veginn til að veita gestum innsýn í það allra helsta sem svæðið býður upp á. Ég myndi því þrengja hringinn og hafa dagskrá gestanna eingöngu innan lögsögu Grindavíkur auk Krísuvíkur.

Eldstöðvarnar í Geldingadölum eru líklega fjölsóttasti ferðamannastaður landsins þetta árið. Fólk kemur gagngert frá fjarlægum löndum til þess að skoða þetta mikla sjónarspil og því er skylduverkefni þeirra sem ber að garði að berja eldgosið augum. Akandi Krísuvíkurleiðina að Suðurstrandarvegi og þaðan í vesturátt mætti nefna marga áhugaverða staði; Kleifarvatn, Seltún, Krísuvík og Krísuvíkurbjarg, Húshólma, Selatanga, Vigdísarvelli, Þórkötlustaðahverfið, Hópsnes, Grindavíkurhöfn, Kvikuna í Grindavík, Eldvörp, Brimketil og Gunnuhver.

Í Grindavík er úrval veitingastaða við allra hæfi og Bláa lónið er rómað og þekkt langt út fyrir landsteinana. Vonandi gæfist gestunum tími til að heimsækja handverksfólk, njóta afþreyingar sem einkaaðilar hafa á boðstólum eða taka hring á hinum rómaða golfvelli Grindvíkinga. Mögulega mætti enda daginn með gönguferð upp á bæjarfjallið Þorbjörn og fá þaðan gott útsýni yfir stóran hluta Reykjanesskagans. 

Ef þú fengir tækifæri á að koma með góð ráð til verðandi þingmanna kjördæmisins, hver væru þau?

Byrja á því að hitta sveitarstjórnarmenn og fá hjá þeim gögn sem sýna fram á það hversu mikið hallar á Suðurnesin þegar kemur að skiptingu fjárframlaga ríkisins til opinberra stofnana. Vinna síðan hörðum höndum að því að rétta þann hlut.