Dubliner
Dubliner

Fréttir

Háaleitisskóli hlýtur Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2025
Fimmtudagur 6. nóvember 2025 kl. 09:54

Háaleitisskóli hlýtur Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2025

Fjölmenningarlegt skólastarf gert að fyrirmynd fyrir aðra skóla

Háaleitisskóli í Reykjanesbæ hefur hlotið Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2025 fyrir markvisst og metnaðarfullt starf við að byggja upp öflugan fjölmenningarskóla sem Viðurkenningarráð telur geta orðið öðrum fyrirmynd.

Í Háaleitisskóla stunda um 370 börn nám og eru um 70 prósent nemenda af erlendum uppruna. Tæplega 30 tungumál eru töluð í skólanum og er fjölmenning skilgreind sem styrkur í skólastarfinu. Ráðið bendir á að jákvæð skólamenning hafi verið mótuð með markvissum úrræðum og náinni samvinnu við fjölskyldur nemenda.

Bílakjarninn nóv. 25 MCC
Bílakjarninn nóv. 25 MCC

Eitt helsta sérkenni skólans er hvernig félagslíf og daglegt skólastarf eru fléttað saman. Félagsmiðstöð skólans er opin í frímínútum og hádegishléum og stuðlar að virkri þátttöku og jákvæðum samskiptum. Þá hefur svokallað „vellíðunarver“ verið komið á fót þar sem nemendur sem þess þurfa fá tímabundinn stuðning.

Móttökudeildin Friðheimar sinnir nemendum af erlendum uppruna. Börnin læra íslensku í um þrjá mánuði áður en þau hefja almennt nám, en taka samhliða þátt í kennslu í list- og verkgreinum, upplýsingatækni og íþróttum með sínum bekk til að styrkja félagslega aðlögun frá fyrsta degi.

Skólinn leggur jafnframt ríka áherslu á stuðning við nemendur og foreldra. Sérstakur nemendaráðgjafi veitir ráðgjöf þegar upp koma tilfinninga- eða félagslegar áskoranir og boðið er upp á regluleg fræðslunámskeið fyrir foreldra um íslenskt skólakerfi og menningu. Markmiðið er að efla þátttöku, byggja brýr milli heimila og skóla og styrkja samheldni í skólasamfélaginu.

Háaleitisskóli er réttindaskóli UNICEF og tekur þátt í átakinu Sjötta hvert barn, sem vekur athygli á stöðu barna sem búa við afleiðingar stríðs og átaka. Nemendur taka þar þátt í umfangsmikilli myndlistasýningu sem opnuð verður á Alþjóðadegi barna, 20. nóvember, og er meðal stærstu sinnar tegundar hér á landi.

Skólastjóri Háaleitisskóla er Unnar Stefán Sigurðsson og aðstoðarskólastjóri er Jurgita Milleriene.

Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna segir í rökstuðningi sínum að fjölmenningarlegt og heildstætt starf skólans sé til fyrirmyndar og geri Háaleitisskóla að verðugum handhafa Hvatningarverðlauna ársins 2025.

Hér má lesa meira um skólastarfið í Háaleitisskóla í umfjöllun Víkurfrétta frá því í haust.


Íslensku menntaverðlaunin 2025 veitt á Bessastöðum

Íslensku menntaverðlaunin 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 4. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Verðlaunin ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.

Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarfi fær Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fyrir afar metnaðarfullt og árangursríkt starf. Árangur hljómsveitarinnar þykir einstakur. Hún hefur komið fram í sýningum í Borgarleikhúsinu, með Íslenska dansflokknum, á Myrkum músíkdögum, í sjónvarpi, á fjölmörgum hljómleikum og við ýmsa viðburði, auk þess að heimsækja dvalarheimili aldraðra, svo fátt eitt sé nefnt. Síðustu ár hefur hátt hlutfall nemenda við skólahljómsveitina haldið áfram tónlistarnámi.

Verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu fær í ár Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla, fyrir framúrskarandi árangur í starfi. Örvar Rafn þykir einstaklega laginn við að ná til allra nemenda, leggur áherslu á hollustu og heilbrigða lífshætti og sýnir nemendum í verki hversu mikils virði það er að að leggja sig fram fyrir hópinn og láta aldrei sitt eftir liggja við að aðstoða og hjálpa öðrum að ná markmiðum sínum.  Flóaskóli hefur undir leiðsögn Örvars tekið þátt í Skólahreysti undanfarin ár. Þó skólinn sé fámennur, hafa keppnislið skólans náð inn í úrslit ár eftir ár og tvisvar unnið keppnina.

Verðlaun í flokki þróunarverkefna fær verkefnið  Lítil skref á leið til læsis, samstarfsverkefni leikskólans Grænuvalla og Borgarhólsskóla á Húsavík um málörvun og læsi. Verkefnið beinist annars vegar að auknu samráði kennara á báðum stigum um að efla málþroska og læsi og hins vegar að öflugri foreldrafræðslu. Áhugaverður þáttur í verkefninu er aðkoma sjúkraþjálfara, sem hefur kannað fínhreyfingar barnanna og síðan hafa þau börn sem á því þurfa að halda fengið markvissa þjálfun.

Verðlaun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar fær Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum sem hefur á undanförnum árum markað sér sterka stöðu í kennslu málm- og vélstjórnargreina. Sérstaða námsins felst í því hvernig tekist hefur að umbreyta hefðbundnu námi í verkefnamiðað og atvinnulífstengt ferli þar sem nemendur vinna raunhæf verkefni sem endurspegla aðstæður í atvinnulífinu.

Hvatningarverðlaunin koma í hlut Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Í skólanum eru sjö af hverjum tíu nemendum eru af erlendum uppruna og í skólanum eru töluð um 30 tungumál. Í skólanum hefur tekist að skapa einstaklega jákvæða skólamenningu, m.a. með því að líta á fjölmenninguna sem styrk skólans. Mikil rækt hefur verið lögð á samstarf við foreldra og að styðja þá við að setja sig inn í og skilja íslenskt skólakerfi.

Að Íslensku menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.

Mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið og Samtök iðnaðarins fjármagna verkefnið.

Athygli er vakin á því að þegar er hægt að senda inn tillögur að tilnefningum fyrir næsta ár, sjá á www.skólaþróun.is þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefningar.

Dubliner
Dubliner