Mannlíf

Langar að vinna við glæparannsóknir
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 6. júní 2020 kl. 07:12

Langar að vinna við glæparannsóknir

segir Sandgerðismærin Salka Lind Reinhardsdóttir, dúx á vorönn í FS með 9,43 í meðaleinkunn.

„Ég er að fara í lífeindafræði í Háskóla Íslands. Það er eitthvað sem hljómar mjög spennandi. Ég sé fyrir mér að þetta sé fjölbreytt og áhugavert nám,“ segir Salka Lind Reinhardsdóttir, dúx á vorönn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en hún var með 9,43 í meðaleinkunn og útskrifaðist af raunvísindabraut og var þrjú ár í náminu.

– Hvað er svo eftirminnilegast eftir námið í FS, námslega séð og félagslega séð?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eftirminnilegast varðandi námið var að fá að virkja neyðarsturtuna í efnafræðistofunni. Gummi efnafræðikennari varð upp frá því uppáhaldskennarinn minn að eilífu. Einnig kom mér á óvart hvað það eru fjölbreyttir áfangar í FS og hvernig kennararnir gera námsefnið áhugaverðara og skemmtilegra.

Eftirminnilegast félagslega var hvað ég eignaðist marga góða og trausta vini sem ég mun vera í sambandi við allt lífið.

– Hvernig var að útskrifast á tímum COVID-19? Hvernig gekk þér með það?

Allt námið fór fram í fjarkennslu og það var oft erfitt að taka próf í líffræði einn heima í stofu. Sem betur fer var ég í fáum áföngum því ég var búin með flest fögin fyrir þessa síðustu önn. Mér gekk vel að vinna heima en það kom vel í ljós hvað kennarinn er mikilvægur í kennslunni. Þegar kennarinn er ekki þá vantaði oft drifkraftinn til að læra sjálfur. Þegar prófin voru gagnapróf þá sá maður ekki alltaf tilganginn í að skoða námsefnið, því það var leyfilegt að hafa öll gögn í prófinu. Prófin voru líka miklu erfiðari þar sem leyfilegt var að hafa gögn.

– Hefur þú alltaf verið góður námsmaður?

Já, mér hefur alltaf gengið vel í námi. Ég fékk mjög mörg verðlaun þegar ég útskrifaðist úr 10. bekk í Grunnskólanum í Sandgerði og var með hæstu meðaleinkunnina.

– Áttirðu von á því að verða dúx?

Ég átti alls ekki von á því. Ég vonaði það samt af öllu mínu hjarta þar sem mér hafði gengið vel og þetta voru æðstu verðlaunin fyrir að hafa lagt mikið á sig.

– Einhver uppáhaldsfög?

Stærðfræði er uppáhaldsfagið mitt þegar ég veit hvað ég á að gera. Ég held líka upp á efnafræði þó hún geti verið snúin. Þessi fög eru líka í uppáhaldi því kennararnir mínir í þeim eru frábærir. Maður er ekkert stressaður að fara í tíma hjá Gulla og Gumma því maður veit að þeir hjálpa manni ef maður er stopp.

– Framtíðaráform, draumastarf?

Ég ætla að klára grunnnámið í lífeindafræði og líka master. Svo er spurning hvort ég fari út og bæti við mig sérfræðiþekkingu. Mig langar að vinna við glæparannsóknir í framtíðinni en það verður líklega ekki á Íslandi.

– En sumarið, hvernig verður það?

Ég er að vinna á Byggðasafni Reykjanesbæjar sem aðstoðarmaður safnstjóra þar. Við setjum upp sýningar eins og til dæmis sýninguna Hlustað á hafið. Sú sýning byrjar föstudaginn 5. júní. Mér líst vel á starfið og held að það verði mjög skemmtilegt að vinna við þetta í sumar. Ég hef verið að vinna í fiski undanfarin þrjú sumur, svo þetta verður góð tilbreyting.

Ég ætla svo að ferðast með fjölskyldunni minni. Við ætlum í fossagöngu með Ferðafélagi Íslands en það er þriggja daga ganga með hópi. Svo ætlum við að gera eitthvað meira saman en erum ekki alveg búin að fastsetja það.