Mannlíf

Kristín Lea leikstjóri: „Það er eitthvað töfrandi í gangi hérna“
Föstudagur 20. mars 2026 kl. 08:45

Kristín Lea leikstjóri: „Það er eitthvað töfrandi í gangi hérna“

Kristín Lea Sigríðardóttir leikstýrir sýningunni We Will Rock You hjá Leikfélagi Keflavíkur sem frumsýnd var um nýliðna helgi í Frumleikhúsinu. Fyrir Kristínu er verkefnið sérstaklega dýrmætt þar sem hún steig sín fyrstu skref á sviði í einmitt sama húsi.

Þótt Kristín Lea sé þekktust fyrir störf sín í kvikmyndaheiminum segir hún það hafa verið auðvelda ákvörðun að taka að sér leikstjórnina þegar félagið hafði samband. „Það var einhvern veginn aldrei spurning,“ segir hún og minnist þess þegar hún lék í verkinu Kalda borðinu undir leikstjórn Þórs Jóhannessonar á sínum tíma í Frumleikhúsinu.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Metnaður á hærra plani

Kristín segir kraftinn í áhugamannaleikhúsinu í Keflavík hafa komið sér skemmtilega á óvart. „Mér finnst þetta vera á hærra plani en venjulegt áhugamannaleikhús, án þess að varpa skugga á neinn. Það er svo mikil ástríða og metnaður hérna; það er eitthvað töfrandi í gangi.“

Sýningin We Will Rock You byggir á tónlist hljómsveitarinnar Queen en sagan sjálf gerist í framtíðinni, árið 2326, á jörð sem nú heitir „iPlanet“. Þar ræður risafyrirtækið GlobalSoft ríkjum og hefur bannað alla persónulega sköpun og tónlist. Kristín segir hópinn hafa kafað djúpt í söguna og unnið mikið í leiktækni og karaktersköpun.

Krónísk gæsahúð á æfingum

Aðspurð um hópinn sem hún vinnur með sparar leikstjórinn ekki hrósið. „Þau eru dásamleg. Það er svo gefandi að sjá þau stíga inn í karakterana og skína. Ég er handviss um að hér séu margir framtíðarleikarar á ferð og söngvararnir eru rosalegir,“ segir Kristín og bætir við með bros á vör: „Ég er með króníska gæsahúð rennsli eftir rennsli.“

Kristín hvetur fólk til að láta sýninguna ekki fram hjá sér fara og upplifa töfrana og tónlistina í Frumleikhúsinu.