Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Jón Jónsson rafmagnaður „á trúnó“ í Bergi á fimmtudag: „Þetta verður inn að beini“
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 14:54

Jón Jónsson rafmagnaður „á trúnó“ í Bergi á fimmtudag: „Þetta verður inn að beini“

Átján sekúndna innkoma í Garðinum - beint í punginn!

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson undirbýr sig nú af kappi fyrir tónleikaröðina „Á trúnó“ sem fram fer í Bergi í Hljómahöll fimmtudagskvöldið 19. mars nk. Jón lofar einlægri stemningu þar sem spjall og tónlist renna saman í eitt, en hann mætir einn á svið með gítarinn í nálægð við áhorfendur.

Jón segist spenntur fyrir því að spila í minna rými eins og Bergi, en nýlegir tónleikar hans í Bæjarbíói og á Hótel Búðum voru á svipuðum nótum og heppnuðust vel.

„Mér finnst svo gaman að vera nánast bara að spjalla við fólkið. Þetta er ekki stórt og þess vegna verður þetta svo einlægt og inn að beini,“ segir Jón. Þótt hann mæti með ákveðið „leikplan“ eða lagalista, segist hann tilbúinn að sóla sig út úr því ef stemningin kallar á eitthvað annað. „Ef fólk biður um eitthvað lag þá reyni ég bara að henda í það ef ég man það.“

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

18 sekúndna innkoma í Garðinum

Talið barst fljótt að tengingu Jóns við Suðurnesin, en hann á skrautlega minningu úr Garðinum frá því hann var í fótboltanum með FH þar sem bakvörðurinn barðist oft við Keflvíkinga en hann eigi marga aðdáendur og vini í bítlabænum. Jón vildi líka hvetja fólk úr Garðinum sérstaklega til að mæta í Hljómahöllina, enda á hann þar ákveðna „frumraun“.

„Ég spilaði minn fyrsta meistaraflokksleik með FH á móti Víði í Garðinum í 32-liða úrslitum árið 2005. Ég var varla búinn að vera inn á í 18 sekúndur þegar ég fékk boltann beint í punginn,“ segir Jón og hlær. „En ég lagðist ekki niður. Ég hugsaði með mér að ég gæti ekki verið nýkominn inn á og látið sjá að ég væri að drepast.“

Lærir af kempum og ungviði

Líf tónlistarmannsins er fjölbreytt og Jón segist sækja innblástur í samstarf við aðra. Hann hefur nýlega unnið með tónlistarmönnum á borð við KK og Mugison, og segist hafa lært mikið af þeim. Þeir fóru saman til Nashville og voru saman með tónleikaröð í desember. 

„Ég var að segja KK frá því að ég væri farinn að nota fótinn meira, svona hi-hat og bassatrommuhljóð með gítarspilinu. Hann var svo ánægður og sagði: ‚Þarna er buskerinn mættur í þig!‘ Hann þekkir þetta náttúrulega manna best eftir að hafa spilað á götunni í Noregi í den,“ segir Jón. Hann bætir því við að Mugison hafi líka haft áhrif á hann, en að fylgjast með honum umkringdum fullt af hljóðfærum hvetji hann til að prófa nýja hluti.

Á tónleikunum í Bergi ætlar Jón að nota rafmagnsgítarinn meira en venjulega til að skapa nýjan hljóðheim. „Ég er að vanda mig við að vera töff líka, þetta verður ekki bara eins og einhver kvöldvaka.“

Keppnismaðurinn mættur

Aðspurður um miðasölu og samanburð við bróður sinn, Friðrik Dór, sem seldi upp á skömmum tíma í sömu tónleikaröð, kemur keppnismaðurinn í Jóni upp á yfirborðið.

„Ég er smá fúll yfir þessu, skipulagið var ekki alveg upp á tíu, að setja mig viku á eftir bróður mínum og í sama mánuði og Ásgeir Trausti. Buddan hjá fólki er bara tóm en keppnismaðurinn vaknar alveg“, segir Jón og hlær en bætir við að hann ætli sér að selja upp næstu tvo sólarhringa. „Ég ætla að klára þessa miða.“

Miðasala er hér