Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Mannlíf

„Tókum félagsskapinn fram yfir sönginn“
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 10:10

„Tókum félagsskapinn fram yfir sönginn“

Söngsveitin Víkingar í 30 ár. Halda tónleika 5. og 7. maí.

Söngsveitin Víkingar fagnar þessa dagana stórafmæli, en liðlega 30 ár eru liðin frá því að hópur söngvissra karla kom saman og ákvað að stofna sönghóp sem væri laus við stífni hefðbundinna karlakóra. Fram undan eru afmælistónleikar í Njarðvíkurkirkju og Sandgerðiskirkju þar sem blásið verður í glæðurnar undir stjórn nýs stjórnanda, Arons Axels Cortes.

Stofnað í heimahúsi milli jóla og nýárs

Aðalbros
Aðalbros

Sagan hófst formlega þann 29. desember árið 1994 á Lyngbraut 1 í Garðinum. Guðmundur Jens Knútsson rifjar upp að forsprakkar hópsins hafi verið nokkrir karlar sem Guðmundur hóaði saman en um hafi verið að ræða átta karla sem hann vissi að myndu hafa áhuga á að sameinast í söng.

„Okkur langaði einfaldlega til að stofna góðan hóp og við vildum ekki kalla þetta kór, hvað þá karlakór. Við tókum okkur ekki það alvarlega í byrjun,“ segir Guðmundur Jens. Í upphafi voru Víkingarnir aðeins átta talsins, allir úr Garðinum eða Sandgerði, en þegar mest lét voru þeir 27 eða 28. Talið er að yfir 70 karlar hafi komið við sögu í sveitinni á þessum þremur áratugum. Af þessum átta sem stofnuðu söngsveitina eru sex ennþá starfandi og syngjandi. En söngsveitin stjórnar sér ekki sjálf svo á þessum 30 árum hafa ýmsir stjórnendur komið við sögu og kann sveitin þeim bestu þakkir fyrir en ber þar sérstaklega að nefna bræðurna Jóhann Smára og Sigurð Sævarssyni sem stýrðu söngsveitinni á sitthvorum tíma um árabil með miklum sóma.

Vítt og breitt um tónlistarsviðið

Þrátt fyrir að Víkingar syngi mikið af hefðbundnum karlakórslögum þá hafa þeir aldrei látið raddirnar einskorðast við það. Sveitin hefur flakkað um popptónlist, syrpur eftir heimsþekkta tónlistarmenn og sérútsett lög eftir Vigni Bergmann sem dæmi.

„Við höfum farið vítt og breitt. Karlakórslögin, sérstaklega þau fjórrödduðu án undirleiks, henta okkur samt alltaf vel,“ nefnir Guðmundur Jens sem dæmi.

Sveitin er þekkt fyrir að syngja við ýmis tækifæri: í afmælum, á jólum, í verslunum eins og BYKO, Nettó og Húsasmiðjunni, og fyrir eldra fólkið á svæðinu. Einn af hápunktunum í sögu sveitarinnar var þátttaka í Fiskideginum mikla á Dalvík, þar sem þeir sungu fyrir tugþúsundir manna. Sveitin hefur einnig í nokkur skipti lagt í víking til annarra landa, svokallaðar menningarferðir. Sveitin fór t.d. í menningarferð til Svíþjóðar og Danmerkur 2017 og söng í Svíþjóð með karlakórnum Nybro Manskör, og svo með kvennakórnum Dóttir í Kaupmannahöfn. Í þeirri heimsókn söng söngsveitin einnig í Jónshúsi svo Jón Sigurðsson hefur eflaust tekið undir. Á síðasta ári heimsótti sveitin Dublin á Írlandi og skemmti sér og öðrum með söng m.a. meðal gangandi vegfarenda á götum Dublin. Að ógleymdu hefur söngsveitin um árabil sungið á bæjarhátíðum á Suðurnesjum.

Þá er mjög minnistætt þegar söngsveitin tók þátt í keppninni Kórar Íslands á Stöð 2 fyrir nokkrum árum, sjónvarpsseríu sem tekin var upp í Atlantic Studios á Ásbrú. Jafnframt hefur söngsveitin tekið þátt í Kötlumóti og hefur fengið kóra í heimsókn til sín sem og farið í heimsókn til kóra sem hefur ávallt tekist vel.

En Söngsveitin Víkingar er meira en bara að hittast og syngja saman. Félagsskapurinn er svo dýrmætur og þá með fólkinu sínu, mökum og börnum. Sveitin hefur ávallt komið saman í útilegu á hverju sumri og þá iðulega í Laugalandi í Holtum. Þar er að sjálfsögðu tekið lagið en líka farið í leiki og grillað saman. Einnig hefur Víkingar haft fyrir reglu að halda konukvöld, þá er konunum boðið í mat og skemmtun og að sjálfsögðu heldur sveitin uppi fjörinu.

Nýr kraftur eftir Covid-lægð

Líkt og hjá mörgum öðrum félögum reyndist Covid-tíminn sveitinni erfiður. Mætingar voru dræmar í kjölfarið og starfið lá nánast niðri um tíma. Það kom til tals að sameinast Karlakór Keflavíkur, en vilji Víkinganna stóð til þess að halda sjálfstæðinu, að halda áfram á óbreyttri braut.

Í fyrrahaust var því ákveðið að reyna að ná þessu upp aftur. Við fengum nýjan stjórnanda og það er eins og það hafi verið blásið í glæðurnar,“ segir Ólafur Eyjólfsson, sem í dag er forseti Söngsveitarinnar Víkinga. Sveitinni þykir viðeigandi að vera ekki með formann, heldur fara beint í forsetanafnbótina og því er Ólafur forseti.

Nýr stjórnandi sveitarinnar er Aron Axel Cortes, búsettur í Garðinum. Hann er sagður mikil búbót fyrir sveitina, hörkusöngvari og tónlistarmaður sem hefur náð að rífa hópinn upp.

Afmælistónleikar í maí

Víkingarnir munu halda tvenna afmælistónleika nú í maí:

Þriðjudaginn 5. maí
í Njarðvíkurkirkju
kl. 20:00.

Fimmtudaginn 7. maí
í Sandgerðiskirkju
kl. 20:00.

Á efnisskránni er að mestu gamalt og gott efni úr fórum sveitarinnar. Sérstök áhersla er lögð á að tónleikarnir séu opnir öllum og ekkert er rukkað inn, en sveitin leitar jafnan styrkja hjá fyrirtækjum á svæðinu til að standa straum af kostnaði og kann söngsveitin þeim miklar þakkir fyrir. Þá fékk söngsveitin nýverið styrk úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar til að halda afmælistónleikana.

Söngsveitin stendur nú á tímamótum og leitar logandi ljósi að yngri mönnum til að bætast í hópinn. „Eins og einhver sagði: þeir mega bara ekki vera leiðinlegir og þeir þurfa að geta sungið,“ segir forsetinn kíminn að lokum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar