Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Þrír Suðurnesjamenn valdir í A-landsliðshóp karla
Keflvíkingurinn Ísak Óli Ólafsson, sem leikur með Esjberg í Dandmörku, hefur leikið einn leik með A-landsliði Íslands.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 8. nóvember 2021 kl. 09:00

Þrír Suðurnesjamenn valdir í A-landsliðshóp karla

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari A karla, hefur valið hópinn fyrir tvo leiki sem íslenska landsliðið leikur í nóvember. Ísland mætir Rúmeníu og Norður-Makedóníu í síðustu tveimur leikjum liðsins í undankeppni HM 2022, báðir leikirnir fara fram ytra. Leikurinn gegn Rúmeníu fer fram á National Arena í Bucharest fimmtudaginn 11. nóvember kl. 19:45 og Norður-Makedóníu á National Arena Todor Proeski sunnudaginn 14. nóvember kl. 17:00.

Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarson, leikmaður Blackpool, á þrjá leiki með A-landsliði Íslands.
Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason á að baki 40 leiki með A-landsliðinu og hefur skorað fimm mörk fyrir Ísland. Hann er á mála hjá New England Revolution í Bandaríkjunum.
Hópurinn

Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 2 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking
Rúnar Alex Rúnarsson - OH Leuven - 12 leikir
Alfons Sampsted - Bodö/Glimt - 6 leikir
Birkir Már Sævarsson - Valur - 102 leikir, 3 mörk
Brynjar Ingi Bjarnason - Lecce - 8 leikir, 2 mörk
Ari Leifsson - Stromsgodset - 1 leikur
Daníel Leó Grétarsson - Blackpool - 3 leikir
Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg - 1 leikur
Ari Freyr Skúlason - IFK Norrköping - 82 leikir
Guðmundur Þórarinsson - New York City FC - 10 leikir
Birkir Bjarnason - Adana Demirspor - 103 leikir, 14 mörk
Andri Fannar Baldursson - FC Köbenhavn - 8 leikir
Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar - 27 leikir, 6 mörk
Mikael Egill Ellertsson - SPAL - 2 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg - 5 leikir, 1 mark
Aron Elís Þrándarson - OB - 6 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - FC Köbenhavn - 8 leikir, 1 mark
Þórir Jóhann Helgason - Lecce - 5 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - AGF - 14 leikir, 1 mark
Arnór Ingvi Traustason - New England Revolution - 40 leikir, 5 mörk
Viðar Örn Kjartansson - Valerenga - 32 leikir, 4 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen - Elfsborg - 6 leikir
Andri Lucas Guðjohnsen - Real Madrid - 4 leikir, 2 mörk

Public deli
Public deli

Tengdar fréttir