María Rán lamdi andstæðing - segist hafa „misst hausinn“
María Rán Ágústsdóttir í Lengjudeildarliði Keflavíkur í knattspyrnu sem fékk að líta rauða spjaldið í leik liðsins og HK í Lengjudeild kvenna síðasta sunnudag fyrir að slá Ragnhildi S. Jónasdóttur, leikmann HK tvívegis, hefur beðið hana afsökunar. María segist hafa snöggreiðst eftir að hafa fengið spark frá Ragnhildi rétt áður þar sem þær lágu í grasinu.
Ragnhildu fékk einnig að líta rautt spjald í kjölfar atviksins.
„Ég snögg reiddist og lamdi frá mér, ég er alls ekki stolt af þessu og mun díla við afleiðingarnar af þessu. Ég sé mikið eftir því að hafa misst hausinn algjörlega og mun læra af þessu.
Ég hef alltaf verið mjög skapstór og það hefur verið minn helsti veikleiki á vellinum, þar sem það á til að vera stutt í reiðina hjá mér, en þetta er bara eitthvað sem ég þarf að vinna í," segir María í viðtali við fotbolti.net en hún er á tuttugasta aldursári. Hún sendi afsökunarbeiðni á Ragnhildi í kjölfar atviksins.









